Kvöldvaka heimavistarráðs þriðjudagskvöldið 16. apríl

Heimavistarráð stendur fyrir kvöldvöku þriðjudagskvöldið 16. apríl kl. 20.  Kvöldvakan er ætluð íbúum heimavistar og verður hún haldin í Kvosinni samkomusal MA.  Á kvöldvökunni verður boðið upp á fjölbreytt heimatilbúin skemmtiatriði auk þess sem kosið verður um herra og frú heimavist.  Veitingar verða í boði heimavistarráðs.  Hvetjum alla íbúa til að missa ekki af skemmtilegri kvöldstund.