Lokað á heimavistinni um jól og áramót

Heimavistinni verður lokað kl. 12:00 á hádegi, laugardaginn 19. desember. Heimavistin verður opnuð eftir jólafrí sunnudaginn 3. janúar kl. 12:00.
Áður en íbúar yfirgefa herbergin eru þau vinsamlegast beðin gangið úr skugga um að allt sé eins og það á að vera, s.s. gluggar lokaðir, engin rafmagnstæki í gangi, ísskápur tæmdur og farið sé með rusl í gámana.

Bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á nýju ári.
Starfsfólk Heimavistar MA og VMA