Lokað á heimavistinni um páskana

Senn líður að páskafríi íbúa en báðir framhaldsskólarnir MA og VMA eru með síðasta kennsludag fyrir páska föstudaginn  23. mars. Heimavistin verður því lokuð frá kl. 12 á hádegi laugardaginn 24. mars.  Báðir skólarnir hefja kennslu eftir páska miðvikudaginn 4. apríl.  Heimavistin verður því opnuð eftir páskafrí þriðjudaginn 3. apríl kl. 12.