Lokað um jól og áramót

Kæru íbúar

Heimavistinni verður lokað kl. 12:00 á hádegi, föstudaginn 21. desember

Heimavistin verður opnuð eftir jólafrí fimmtudaginn 3. janúar kl. 9:00

Áður en þið yfirgefið herbergin, vinsamlegast gangið úr skugga um að allt sé eins og það á að vera, s.s. lokaðir gluggar, engin rafmagnstæki í gangi, ísskápur tæmdur og ruslið í gámana.

Bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á nýju ári
Starfsfólk Heimavistar MA og VMA