Próftími á heimavist

Próftími á heimavist hefst sunnudaginn 5. desember og þá gilda ákveðnar reglur:

  • Næði á að vera allan sólarhringinn.
  • Ekki er heimilt að hafa hjá sér gesti nema með sérstöku leyfi starfsmanns. Ekki eru veitt leyfi fyrir næturgestum meðan á próftíma stendur.
  • Hljómflutningstæki og sjónvörp á herbergjum og setustofum mega alls ekki valda ónæði.
  • Morgunmatur er virka daga kl. 7:15 – 9:15 og um helgar kl. 11:00 – 13:00.  Kaffitími er alla daga frá kl. 15:00 - 16:30.
  • Hafið samband við starfsmann á vakt í síma  899 1602 eða 455 1602  ef þið verðið fyrir ónæði.

 

Gangi ykkur vel prófunum og munum að sýna tillitssemi
Starfsfólk Heimavistar MA og VMA