Mikil aðsókn að heimavist skólaárið 2012-2013

Líkt og undanfarin ár er mikil aðsókn að heimavistinni  en umsóknarfrestur fyrir næsta skólaár rann út 8. júní s.l.  Það eru skólarnir sem sjá um að forgangsraða nemendum á heimavistina en líklegt er að einhverjir fari á biðlista.   Í næstu viku verða send út bréf til umsækjenda.