Móttaka íbúa VMA á heimavist

 
Undirbúum móttöku íbúa VMA og MA
Við höfum tekið til starfa eftir sumarfrí og erum byrjuð að undirbúa komu íbúa.
Móttaka íbúa Verkmenntaskólans á Akureyri er mánudaginn 16. ágúst frá klukkan 13:00 til 20:00 og þriðjudaginn 17. ágúst frá klukkan 08:30 til 18:00.  Kennsla hefst í VMA samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 18. ágúst. Íbúar ættu að fá samninga og önnur gögn frá okkur í pósti eftir helgina.
Athugið að móttakan er miðuð við gildandi sóttvarnartakmarkanir. Ef breyting verður á verður það auglýst sérstaklega.

Móttaka íbúa í MA verður sunnudaginn 22. ágúst og mánudaginn 23. ágúst. Samningar ættu að berast vikunni áður.