Móttaka nýnema í VMA miðvikudaginn 19. ágúst - skipulag á móttöku

Eins og fram hefur komið þá hefur skólabyrjun í VMA  verið frestað og því breytist tímasetning á móttöku VMA íbúa á heimavist.

Miðvikudaginn 19. ágúst tökum við á móti nýnemum (fæddir 2004 og 2005).

Dagsetning á skólabyrjun hjá eldri íbúum og þeim eldri íbúum sem ekki hafa verið áður á heimavist liggur ekki fyrir en verður birt á Heimasíðu og facebook síðu eftir helgi.

Skipulagið miðast við þær reglur og samkomutakmarkanir sem við búum við vegna COVID-19 og hafa íbúar og forráðamenn fengið tölvupóst þar um.