Ný könnun !

Elsku bestu heimavistarbúar :D 

Ég var að setja inn nýja könnun, og væruð þið til í að vera svo æðisleg að svara henni fyrir okkur í heimavistarráði.

Þannig er mál með vexti að okkur datt í hug að hafa smá ball, þar sem dansaðir yrðu gömlu dansarnir, eftir þorrablótið(sem er 4. febrúar n.k). En við vitum ekki alveg hvort að það sé einhver áhugi fyrir því að dansa gömlu dansana. Okkur finnst voðalega tilgangslaust að fá einhvern/einhverja til þess að spila undir dansi, ef að það væru svo engir sem að myndu dansa. Þannig að nennið þið að hjálpa okkur og svara könnuninni. 

 

Með fyrirfram þökk :D

f.h. heimavistarráðs,

frk. fjölmiðlafulltrúi :)