Nýr meðlimur heimavistarráðs !!

NÝR MEÐLIMUR Í HEIMAVISTARRÁÐI !!!!!!
 
Við í heimavistarráði bjóðum Hilmar Smára Birgisson velkominn í ráðið ! 
Einnig viljum við þakka Agnesi og Berki fyrir drengilega kosningabaráttu.
 
 

Við viljum líka benda fólki á það að framundan er þorrablót, það er dagsett 4.febrúar.Þannig að endilega takið það kvöld frá. Við ætlum að semja einhver skemmtiatriði fyrir það, og því viljum við biðja ykkur, kæru heimavistarbúar, að koma með hugmyndir til okkar. Ef að þið vitið um eitthvað fyndið, kjánalegt, vandræðalegt eða eitthvað álíka sem að íbúar á heimavistinni hafa gert, þá endilega hafið samband við einhverja af okkur í heimavistarráði. Við viljum endilega verða með góð skemmtiatriði og við þurfum ykkar hjálp .. !! Endilega komið hugmyndum á framfæri, ekki vera feimin, við bítum ekkert voðalega fast. 

Það sem er planað í febrúar-apríl er: Karlakveld, konukveld, poolmót stórkvöldvaka, tailenskt matarkvöld, lokakvöldvaka og kannski eitthvað fleira sem að á hreinlega eftir að skipuleggja.