Próftími

Reglur á próftíma

•  Próftími hefst þriðjudaginn 30. apríl kl. 14:00
•  Á próftíma á að vera næði allan sólarhringinn
•  Ekki er heimilt að hafa næturgesti meðan á próftíma stendur
•  Morgunmatur er virka daga kl. 7:15 – 9:15 og um helgar kl. 10:00 – 13:00
•  Á próftíma er drykkur alla daga kl. 15:00 - 16:30, einnig um helgar
•  Hljómflutningstæki og sjónvörp á herbergjum og setustofum mega alls ekki valda ónæði
•  Seta í anddyri og á göngum skal takmörkuð
•  Reglulegum próftíma líkur 15. maí kl. 14:00. Sjúkrapróf eru 16. og 17. maí og eru íbúar beðnir um að sýna tillitssemi.
•  Hafið samband við öryggisvakt í síma 1602 ef þið verðið fyrir ónæði

Sýnum öll tillitsemi
Starfsfólk Heimavistar MA og VMA