Próftími á heimavist - reglur á próftíma

Kæru íbúar.
Nú er próftími á heimavistinni og þá gilda ákveðnar reglur hjá okkur:

 •  Á próftíma á að vera næði allan sólarhringinn.
 •  Ekki er heimilt að hafa næturgesti meðan á próftíma stendur.
 •  Morgunmatur er virka daga kl. 7:15 – 9:15 og um helgar kl. 10:00 – 13:00.
 •  Á próftíma er drykkur alla daga kl. 15:00 - 16:30, einnig um helgar.
 •  Hljómflutningstæki og sjónvörp á herbergjum og setustofum mega alls ekki valda ónæði.
 •  Seta í anddyri og á göngum skal takmörkuð.
 •  Reglum lýkur að loknum síðasta reglulega prófdegi.
 •  Hafið samband við öryggisvakt í síma 1602 ef þið verðið fyrir ónæði  .

Sýnum öll tillitsemi  
Starfsfólk Heimavistar MA og VMA