Próf í VMA byrja föstudaginn 9. maí og því tekur próftími við á
heimavistinni.
Á próftíma gilda ákveðnar reglur á heimavist:
- Próftími hefst miðvikudaginn 7. maí kl. 14:00.
 
- Á próftíma á að vera næði allan sólarhringinn.
 
- Ekki er heimilt að hafa hjá sér gesti nema með sérstöku leyfi starfsmanns. Ekki eru veitt leyfi fyrir
næturgestum meðan á próftíma stendur.
 
- Morgunmatur er virka daga frá kl. 7:15 – 9:15 og um helgar frá
kl. 10:00 – 13:00. Drykkur er alla daga frá kl. 15:00 - 16:30, einnig um helgar.
 
- Hljómflutningstæki og sjónvörp á herbergjum og setustofum mega alls ekki valda ónæði.
 
- Seta í anddyri og á göngum skal takmörkuð.
 
- Reglulegum próftíma í VMA lýkur 20. maí n.k.
 
- Hafið samband við öryggisvakt í síma 1602 ef þið verðið fyrir ónæði.
 
- Sýnum öll tillitssemi.
 
Gangi ykkur vel í prófunum!
Starfsfólk Heimavistar MA og VMA