sumarfrí

Sumarfrí starfsmanna heimavistar Lundar er frá 25. júní - 5. ágúst.

Hér að neðan má lesa svör við helstu spurningum sem brenna á umsækjendum um heimavist.

 

Umsókn um heimavist má senda á netfang húsbónda sigmundur@heimavist.is reynt verður að svara því hvort viðkomandi hafi fengið vistarpláss strax og hægt er, eða í síðasta lagi 7. ágúst.

 

  • Svör við umsóknum fara í póst dagana 25. - 27. júní.
  • Greiðsluseðlar berast frá banka nokkrum dögum síðar.
  • Eindagi greiðsluseðla er 20. júlí.
  • Tekið verður inn af biðlista 5. -  6. ágúst.
  • Séróskir, t.d. um herbergisfélaga verða að hafa borist fyrir 1. ágúst.
  • Ekki verður hægt að fá upplýsingar um niðurröðun á herbergi fyrir 18. ágúst.
  • Leigusamningar og aðrir pappírar verða sendir út viku fyrir upphaf skóla.
  • Þvottanúmer nýrra íbúa heimavistar berast einnig viku fyrir upphaf skóla.
  • Gengið er frá skráningu í mötuneyti við komu á heimavist. 

 

Ef greiðsluseðill berst ekki er hægt að greiða staðfestingar- og tryggingagjald inn á reikning Lundar að upphæð kr. 26.000. Bankaupplýsingar: 0302-26-106252. Kennitala Lundar: 630107-0160. Mikilvægt er að kennitala verðandi íbúa komi fram sem skýring við greiðslu.

Staðfestingar- og tryggingagjald fæst ekki endurgreitt ef hætt er við búsetu á heimavist.