Svör við helstu spurningum fyrir umsækjendur heimavistar skólaárið 2013-2014

Hér koma svör við helstu spurningum fyrir umsækjendur heimavistar:
  • Svör við umsóknum fara í póst 24. júní.
  • Greiðsluseðlar/kröfur vegna staðfestingar- og tryggingargjalds verða stofnaðir/-ar á kennitölu íbúa í innheimtukerfi Arion banka.
  • Eindagi staðfestingar- og tryggingargjalds er 20. júlí.
  • Ef krafa er ekki greidd er gert ráð fyrir að viðkomandi hafi hætt við búsetu á vistinni og nemendur teknir inn af biðlista.
  • Tekið verður inn af biðlista fyrstu dagana í ágúst.
  • Raðað verður niður á herbergi fyrstu dagana í ágúst.
  • Breytingar á umsókn  s.s. varðandi tegund af herbergi eða herbergisfélaga verða að hafa borist fyrir 1. ágúst á netfangið rosa@heimavist.is
  • Leigusamningar og önnur gögn verða sendir í pósti viku fyrir upphaf skóla.
  • Gengið er frá skráningu í mötuneyti við komuna á heimavistina.
  • Staðfestingar- og tryggingargjald fæst ekki endurgreitt ef hætt er við komuna á heimavistina.