Undirbúum móttöku íbúa VMA og MA

Við höfum tekið til starfa eftir sumarfrí og erum byrjuð að undirbúa komu íbúa.
Móttaka íbúa Verkmenntaskólans á Akureyri er þriðjudaginn 16. ágúst frá klukkan 13:00 til 20:00 og miðvikudaginn 17. ágúst frá klukkan 08:30 til 18:00. Kennsla hefst í VMA samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 18. ágúst. Íbúar VMA ættu að fá samninga og önnur gögn frá okkur í pósti eftir helgina.
 
Móttaka íbúa í MA verður sunnudaginn 21. ágúst og mánudaginn 22. ágúst. Samningar ættu að berast vikunni áður.