Uppsagnir á húsaleigusamningum fyrir þá íbúa sem hætta námi um áramót.

Uppsagnir á húsaleigusamningum fyrir þá íbúa
sem hætta námi um áramót.
Athygli er vakin á að uppsögn á húsaleigusamningi við annarskil hjá íbúum MA og VMA er 30. nóvember n.k.
Skila þarf skriflegri uppsögn fyrir þann tíma til að komast hjá að greiða húsaleigu eftir annarskil.
Þeir íbúar sem hætta námi um annarskil vegna ófullnægjandi námsframvindu þurfa að senda skriflega uppsögn til undirritaðrar um leið og niðurstaða annarprófa liggur fyrir. Athugið að við þessar aðstæður er uppsagnarfresturinn einn mánuður eftir annarskil.
Uppsagnir skal senda á netfangið maria@heimavist.is
Aðrir íbúar eru með húsaleigusamning til vors.