Uppsagnir á húsaleigusamningum fyrir þá íbúa sem hætta námi um áramót

Athygli er vakin á því að uppsögn á húsaleigusamningi við annarskil hjá íbúum MA og VMA er 30. nóvember n.k. Skila þarf skriflegri uppsögn fyrir þann tíma til að komast hjá því að greiða húsaleigu eftir annarskil. Athugið að þetta gildir bara um þá íbúa sem hætta námi um áramót. Ef íbúi hættir námi um annarskil vegna ófullnægjandi námsframvindu þarf viðkomandi að senda skriflega uppsögn til undirritaðrar um leið og niðurstaða annarprófa liggur fyrir. Aðrir íbúar eru með húsaleigusamning til vors.

Uppsagnir skal senda á netfangið rosa@heimavist.is

Íbúum sem eru að hætta er bent á að fara í þvottahúsið og skila þvottaneti og lykli og geta þannig fengið endurgreitt 3.000,- fyrir lykil og 1.000,- fyrir þvottanet.