Þvottur

Kæri íbúi, Hefur þú fengið þvott í hólfið þitt sem þú átt ekki?? Ef svo er þá vinsamlegast skilaðu honum í þvottahúsið. Takk fyrir, Þvottastrumpur.

Heimavistarráð í myndatöku

Heimavistarráð skellti sér í myndatöku í Lystigarðinum í dag :) Myndir tók MAingurinn Sindri Geir og þið getið tékkað á fleirum hér! Njótið mín kæru! Kveðja, Jóhanna Stefáns f.h. heimavistarráðs

Heimavistarráð

Íbúar Lundar, Nú hefur verið skipað í stöður innan heimavistarráðs og hljóðar svo, Forseti: Hjálmar Björn Guðmundsson. Varaforseti: Jón Árni Magnússon. Ritari: Jóhanna Stefánsdóttir. Vefstjóri: Ómar Eyjólfsson. Fjármálafulltrúi: Þorbjörg Arna Unnsteinsdóttir. Fjölmiðlafulltrúi: Einar Bjarni Björnsson. Andlegur leiðtogi: Guðrún Bjarnveig Jónsdóttir. Þess má svo til gamans geta að nýr gossjálfsali er á leiðinni til okkar í stað gamla þjófsins. Til að svara þeim fyrirspurnum sem komið hafa vegna pool-kjuða þá er staðan svo að leðrin sem vantar ofan á kjuðana fást ekki í landinu eins og er.. Unnið er að því að útvega leður á þá kjuða sem til eru. Heimavistarráð.

Nýtt heimavistarráð

Kæru íbúar,Eftir stranga talningu hefur nú komið í ljós hverjir eru nýir meðlimir heimavistarráðs. Kjörsókn var alls 78% og atkvæði voru 600 talsins. Nýir meðlimir eru eftirtaldir: Einar Bjarni Björnsson Guðrún Bjarnveig Jónsdóttir Hjálmar Björn Guðmundsson Ómar Eyjólfsson Við þökkum öllum þeim sem veittu okkur stuðning með því að kjósa :) Kær kveðja,ykkar ástkæra kjörnefnd - Jóhanna Stefánsdóttir - Jón Árni Magnússon - Þorbjörg Arna Unnsteinsdóttir

Nýtt heimavistarráð

Eftir stranga talningu hefur nú komið í ljós hverjir eru nýir meðlimir heimavistarráðs. Kosningar sóttu 78% af íbúum heimavistar og voru atkvæði alls 600 talsins. Nýir meðlimir eru eftirtaldir: Einar Bjarni Björnsson Guðrún Bjarnveig Jónsdóttir Hjálmar Björn Guðmundsson Ómar Eyjólfsson Þökkum við öllum þeim sem kusu :) Kær kveðja, Kjörnefnd - Jóhanna Stefánsdóttir - Jón Árni Magnússon - Þorbjörg Arna Unnsteinsdóttir