Páskalokun kl. 12:00 laugardaginn 28. mars

Senn líður að páskafríi íbúa en báðir framhaldsskólarnir MA og VMA eru með síðasta kennsludag fyrir páska föstudaginn 27. mars. Heimavistin lokar kl. 12 á hádegi laugardaginn 28. mars. Opnum aftur eftir páskafrí mánudaginn 6. apríl, annan í páskum kl. 12. Áður en þið farið í páskafrí munið að: Hafa herbergin snyrtileg, þá verður svo gaman að koma aftur. Fara með ALLT rusl af herbergjum út í gám. Slökkva á rafmagnstækjum og taka úr sambandi – allt nema ísskápinn, en athuga hvort þar séu matvæli sem geta skemmst. Loka gluggum. Stilla ofna á 3. Með Páskakveðju, Starfsfólk Heimavistar MA og VMA.

Páskabingó á miðvikudaginn 25. mars fyrir íbúa heimavistar

Páskabingó miðvikudaginn 25. mars fyrir íbúa heimavistar. Á setustofunni kl. 20:00. Veglegir páskavinningar í boði.