25.09.2026
Kosning til Heimavistarráðs verður á miðvikudaginn næstkomandi, 30. september. Allir íbúar geta kosið einu sinni.
Kosning fer fram í anddyri kl 19:30-21:00 á miðvikudagskvöld.
Kjörkassinn verður í móttökunni og hver og einn íbúi getur aðeins kosið einu sinni. Hægt er að merkja við allt að sjö einstaklinga á seðilinn en athugið að ekki má merkja við fleiri en sjö. Fleiri krossar ógilda seðillinn.
17.09.2026
Hefur þú það sem til þarf?
Það er komið að því. Nú er opið fyrir tilnefningar í heimavistarráð. Ef þú hefur brennandi áhuga á velferð allra lifandi sálna innan veggja þessarar blessuðu heimavistar þá er ráðið staður fyrir þig.
Kosningarnar verða svo auglýstar síðar.
Hvernig ber ég mig að?
-Fyrsta skref er að finna kjörkassann í afgreiðslu
-Ritaðu nafn þitt á miða ásamt herbergisnúmeri
-Bombaðu miðanum í kjörkassann
-Voila, þú ert kominn í pottinn
04.09.2026
Gangafundir fyrir alla íbúa á Heimavist MA og VMA
Næsta þriðjudag, 8. september ætlar starfsfólk heimavistar og fulltrúar sem sátu í heimavistarráði síðasta skólaár að hitta íbúa og spjalla og eiga góða stund saman. Kaka í boði fyrir íbúa.
Það er skyldumæting og íbúar sem ekki sjá sér fært að mæta á tilgreindum tíma miðað við búsetu þurfa að láta starfsmann vita. Þeir íbúar fá úthlutað öðrum tíma.
Allir gangafundir verða í matsal Heimavistarinnar.
Allir nýjir íbúar sem hafa ekki verið áður og búa á 1.-2. hæð nýju vistar kl. 16:00 í matsal Heimavistarinnar.
Allir nýjir íbúar sem hafa ekki verið áður og búa á 3-5. hæð nýju vistar og allir nýjir íbúar sem hafa ekki verið áður og búa á gömlu vist kl. 16:30 í matsal Heimavistarinnar.
Allir eldri íbúar, sem hafa búið hér áður og búa á nýju vist og gömlu vist kl. 17:00 í matsal Heimavistarinnar.
Hlökkum til að funda með ykkur.
Starfsfólk Heimavistar MA og VMA.