14.08.2026
Unnið er að því að innleiða nýtt kerfi til að sinna skráningu og greiðslu í mötuneytinu.
Nú er hægt að skrá sig í annaráskrift með því að ýta á hlekkinn hér að neðan. Bráðlega mun nýtt app líta dagsins ljós og verður notað til þess að skrá sig inn í mat, þangað til er nóg að segja nafnið sitt á kassanum hvort sem er í MA eða VMA.
Eins og sakir standa er einungis hægt að skrá sig hér í annaráskrift (fyrir nemendur MA og VMA) og íbúar heimavistar geta skráð sig í sínar áskriftir.
Ef kaupa á 10 skipta kort eða stakar máltíðir má ganga frá slíkum kaupum í mötuneytum skólanna.
Ferlið krefst innskráningar með rafrænum skilríkjum, forráðamenn geta skráð sig inn og gengið frá kaupum með greiðslukorti fyrir ólögráða nemendur og nemendur geta sjálfir skráð sig inn og í kjölfarið er hægt að greiða með greiðslukorti, ekki er gerð krafa um að nemendur greiði með sínu eigin korti.
Skráning og greiðsla hér: https://port-id.is/
12.08.2026
Kæru íbúar og forráðafólk. Unnið er að því að senda út húsaleigusamninga til rafrænnar undirritunar og mega verðandi íbúar búast við að fá tölvupóst fyrir helgi með undirritunarbeiðni. Mikilvægt er að lesa vel yfir samninginn með sínu ungmenni og skrifa undir, bæði forráðamaður og íbúi, ef íbúi er undir 18 ára aldri. Í samning er farið yfir reglur og nytsamlega hluti tengda búsetu hér á Heimavistinni. Á forsíðu samnings kemur fram herbergjanúmer og stærð herbergis. Ekki er hægt að gefa upp nafn herbergisfélaga en ef gagnkvæmar óskir hafa borist um herbergisfélaga strax í umsókn þá má reikna með þeirri uppröðun.
Á heimasíðunni okkar má nálgast ýmsar upplýsingar sem gott er að vita áður en komið er á staðinn, t.d. er listi yfir það sem þarf að hafa með sér, rúmstærðir o.fl. í flettilista hér að ofan sem heitir "fyrir íbúa".
05.08.2026
Móttaka nýnema og nýrra íbúa sem eru skráðir í VMA verður sunnudaginn 16. ágúst kl. 12-18. VMA íbúar sem hafa verið áður geta komið á sunnudegi eða mánudegi.
Móttaka nýnema og nýrra íbúa sem eru skráðir í MA verður þriðjudaginn 18. ágúst kl. 10-18. MA íbúar sem hafa verið áður geta komið á þriðjudegi eða miðvikudegi.
Vinsamlegast virðið þessar tímasetningar.