Pub Quis í annað sinn, þriðjudagskvöldið 28. febrúar

Heimavistarráð stendur fyrir Pub Quis spurningaleik í annað sinn í vetur þriðjudagskvöldið 28. febrúar kl. 20 á setustofu heimavistar. Góð mæting var á síðasta Pub Quis enda er spurningaleikurinn einfaldur og skemmtilegur. Íbúar eru hvattir til að koma og spreyta sig. Sem fyrr verða vegleg verðlaun í boði.

Hugmyndasamkeppni um merki Lundar - frestur til 24. mars

Efnt er til samkeppni um merki (lógó) fyrir Lund sjálfseignarstofnun sem á og rekur Heimavist MA og VMA. Öllum nemendum í MA og VMA er frjálst að taka þátt í samkeppninni og er frestur til að skila inn tillögum til 24. mars nk. Merkið þarf að henta fyrir ýmiskonar kynningarefni (s.s bréfsefni, umslög og auglýsingar). Æskilegt er að merkið sé einfalt í prentun og í einum lit. Dómnefndin sem skipuð er skólameisturum MA og VMA, heimavistarstjóra, fulltrúa heimavistarráðs og fulltrúa Lundar, velur úr innsendum tillögum. Athugið að Lundur ses áskilur sér rétt til að nýta ekki vinningstillöguna. Veitt verða peningaverðlaun að upphæð 25.000 krónur fyrir bestu tillöguna. Úrslit verða kynnt á sumardaginn fyrsta, 19. apríl n.k. á opnu húsi heimavistar, en þar verður jafnframt hægt að skoða þær tillögur sem bárust. Tillögum að merkinu/lógóinu skal skila til Heimavistar MA og VMA, Eyrarlandsvegi 28, 600 Akureyri á tölvutæku formi í umslagi merktu með dulnefni. Í umslaginu skal vera lokað umslag með nafni höfundar.

Bíókvöld þriðjudagskvöldið 21. febrúar

Heimavistarráð stendur fyrir bíókvöldi þriðjudagskvöldið 21. febrúar kl. 20 í setustofunni. Allir íbúar hvattir til að mæta.

Pub Quis þriðjudagskvöldið 14. febrúar

Heimavistarráð stendur fyrir Pub Quis spurningaleik þriðjudagskvöldið 14. febrúar kl. 20 á setustofu heimavistar. Spurningaleikurinn er einfaldur og allir íbúar geta tekið þátt, en tveir eru saman í liði. Vegleg verðlaun verða í boði.

Hlífðardýnur

Minnum íbúa á að hægt er að sækja hreinar hlífðardýnur í afgreiðsluna hjá starfsmanni. Mikilvægt er að hafa hlífðardýnur til að verja dýnurnar.

Hugmyndasamkeppni um merki Lundar

Efnt er til samkeppni um merki (lógó) fyrir Lund sjálfseignarstofnun sem á og rekur Heimavist MA og VMA. Öllum nemendum í MA og VMA er frjálst að taka þátt í samkeppninni og er frestur til að skila inn tillögum til 24. mars nk.

Heimsókn grunnskólanemenda á heimavistina

Nemendur í 9. og 10. bekk frá Blönduósi, Húnavöllum og Skagaströnd komu í kynnisferð á heimavistina fimmtudaginn 2. febrúar s.l. Heimsóknin var í tengslum við kynningu þeirra á MA og VMA. Nemendur fengu stutta kynningu á heimavistinni um leið og þau gæddu sér á skúffuköku. Íbúar heimavistar sýndu þeim síðan húsakynnin. Hér má sjá mynd af hluta af nemendum í anddyri heimavistar.

Ársfundur Lundar

Lundur sjálfseignarstofnun boðar til ársfundar fimmtudaginn 16. febrúar n.k. Ársfundurinn verður haldinn í setustofu heimavistar og hefst kl. 16.15. Dagskrá ársfundar: 1. Ársreikningur Lundar skólaárið 2010/2011 til kynningar. 2. Skýrsla stjórnar um starfsemi Lundar skólaárið 2010/2011. 3. Önnur mál. Ársfundur Lundar er opinn þeim sem aðild eiga að Heimavist MA og VMA, s.s. íbúum Lundar, foreldrum og forráðamönnum íbúanna, kennurum og starfsmönnum framhaldsskólanna á Akureyri auk þeirra starfsmanna sem starfa í húsakynnum Lundar.

Tilkynning frá þvottahúsi

Biðjum íbúa að athuga hvort að þeir hafi óvart fengið þvott í hólfin sín sem þeir eiga ekki. Vinsamlegast að skila þvottinum í þvottahúsið. Eins eru íbúar hvattir til að skoða hvort þeir eigi þvott í óskilahorninum. Svava og Sigrún