Heimavistin opnuð 19. ágúst fyrir íbúa VMA

Heimavistin verður opnuð sunnudaginn 19. ágúst fyrir innritun VMA íbúa og afhendingu lykla. Opið verður á sunnudeginum frá klukkan 13:00 til 21 og á mánudeginum 20. ágúst frá klukkan 08:30 til 20.

Helstu upplýsingar fyrir umsækjendur skólaárið 2012-2013

Umsækjendur um heimavist skólárið 2012-2013 eiga þegar að hafa fengið sent bréf í pósti. Þeir umsækjendur hafa fengið staðfestingu á heimavist þurfa að staðfesta búsetu sína á heimavistinni næsta skólaár með því að greiða annars vegar óendurkræft staðfestingar- og skráningargjald og hins vegar tryggingargjald. Eindagi á greiðslu er 20. júlí. Staðfestingar- og skráningargjaldið er að upphæð 7.000 kr. en tryggingargjaldið að upphæð 27.000 kr. Með staðfestingar- og skráningargjaldinu er greitt m.a. fyrir þinglýsingu húsaleigusamnings, en á grundvelli hans og vottorðs um skólavist geta leigjendur og forráðamenn þeirra sótt um húsaleigubætur þar sem leigjandinn hefur lögheimili. Við lok leigutímans og að lokinni úttekt á húsnæðinu endurgreiðist tryggingargjaldið svo framarlega sem engar skemmdir hafa orðið á húsnæði og búnaði, gerð hafa verið skil á leigugreiðslum, netgjaldi, prentkostnaði ef einhver og athugasemdir ekki gerðar við þrif. Reikningar hafa verið sendir í pósti en einnig hafa kröfur verið stofnaðir/-ar á kennitölu íbúa í innheimtukerfi Arion banka og því er unnt að greiða þær án þess að hafa reikningana undir höndum. Það er gert með því að hafa samband við þjónustuver eða þjónustufulltrúa í þínum viðskiptabanka eða sparisjóði. Ef greiðsluseðill berist ekki er hægt að greiða staðfestingar- og tryggingargjaldið að upphæð 34.000 kr. inn á bankareikning Lundar rekstrarfélags: Reikningur: 0302-26-6252. Kennitala Lundar rekstrarfélags: 630107-0160 Mikilvægt er að kennitala viðkomandi íbúa komi fram sem skýring við greiðslu. Staðfestingar- og tryggingargjald fæst ekki endurgreitt ef hætt er við komuna á heimavistina. Tekið verður inn af biðlista fyrstu dagana í ágúst.

Sumarlokun á Heimavist MA og VMA

Skrifstofur heimavistar verða lokaðar í júlí vegna sumarleyfa starfsmanna.

Mikil aðsókn að heimavist skólaárið 2012-2013

Líkt og undanfarin ár er mikil aðsókn að heimavistinni en umsóknarfrestur fyrir næsta skólaár rann út 8. júní s.l. Það eru skólarnir sem sjá um að forgangsraða nemendum á heimavistina en líklegt er að einhverjir fari á biðlista. Í næstu viku verða send út bréf til umsækjenda.

Brautskráning í MA

Starfsfólk heimavistar óskar útskriftarnemendum MA innilega til hamingju með daginn.

Nýtt merki Lundar

Efnt var á dögunum til samkeppni um merki fyrir Lund sjálfseignarstofnun sem á og rekur Heimavist MA og VMA. Viktor Örn Valdimarsson nemandi í VMA átti vinningstillöguna sem hér birtist.

Vegna útskriftar og sjúkra- og endurtökuprófa

Kæru íbúar. Þeir íbúar sem þurfa að vera lengur á heimavistinni vegna sjúkra- og endurtökuprófa eða útskriftar, verða að tilkynna það sem fyrst til Rósu Maríu á netfangið rosa@heimavist.is

Brautskráning í VMA

Starfsfólk heimavistar óskar útskriftarnemendum VMA innilega til hamingju með daginn.

Próftími á heimavist

Nú er próftími á Heimavist MA og VMA. Á próftíma eru allir tillitssamir og ganga hljóðlega um. Engar gestakomur eru leyfðar nema með leyfi vaktmanns. Næturgestir eru ekki leyfðir á próftíma.

Próftími á heimavist

Nú er próftími á Heimavist MA og VMA. Á próftíma eru allir tillitssamir og ganga hljóðlega um. Engar gestakomur eru leyfðar nema með leyfi vaktmanns. Næturgestir eru ekki leyfðir á próftíma.