Gleðilega hátíð

Starfsfólk heimavistar óskar íbúum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar hátíðar. Heimavistin verður opnuð eftir jólafrí sunnudaginn 5. janúar kl. 12.

Brautskráning í Verkmenntaskólanum á Akureyri

Starfsfólk heimavistar óskar útskriftarnemendum VMA innilega til hamingju með daginn.

Lokað um jól og áramót

Kæru íbúar. Heimavistinni verður lokað kl. 12:00 á hádegi, laugardaginn 21. desember. Heimavistin verður opnuð eftir jólafrí sunnudaginn 5. janúar kl. 12:00. Áður en þið yfirgefið herbergin, vinsamlegast gangið úr skugga um að allt sé eins og það á að vera, s.s. lokaðir gluggar, engin rafmagnstæki í gangi, ísskápur tæmdur og ruslið í gámana. Bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á nýju ári Starfsfólk Heimavistar MA og VMA

Jólahlaðborð Heimavistarráðs 2013

Jólahlaðborð Heimavistarráðs verður haldið í kvöld frá kl. 17.30-19. Boðið verður upp á glæsilegan matseðil og eru íbúar hvattir til að mæta í snyrtilegum klæðnaði.

Húsreglur í próftíð

Kæru vistarbúar, þegar próftíð er í gangi gilda reglurnar hér að neðan • Próftími hefst mánudaginn 2. desember kl. 14:00 • Á próftíma á að vera næði allan sólarhringinn • Ekki er heimilt að hafa hjá sér gesti nema með sérstöku leyfi starfsmanns. Ekki eru veitt leyfi fyrir næturgestum meðan á próftíma stendur • Morgunmatur er virka daga kl. 7:15 – 9:15 og um helgar kl. 10:00 – 13:00 • Á próftíma er drykkur alla daga kl. 15:00 - 16:30, einnig um helgar • Hljómflutningstæki og sjónvörp á herbergjum og setustofum mega alls ekki valda ónæði • Seta í anddyri og á göngum skal takmörkuð • Reglulegum próftíma líkur 13. des. kl. 14:00 Sjúkrapróf eru 16. og 17. desember og eru íbúar beðnir um að sýna tillitssemi meðan á þeim stendur • Hafið samband við öryggisvakt í síma 1602 ef þið verðið fyrir ónæði Gangi ykkur vel í prófunum Sýnum öll tillitsemi Starfsfólk Heimavistar MA og VMA

Íbúi heimavistar verður fulltrúi Íslands í ræðukeppni í London

Eins og fram kom á heimasíðu MA þá vann Ásgerður Ólöf Ásgeirsdóttir nemandi á fjórða ári í MA og íbúi á heimavist ræðukeppni hér á landi sem haldin var á vegum ESU (English Speaking Union) og FEKÍ (Félag enskukennarafélags á Íslandi). Ásgerður mun keppa fyrir Íslands hönd í London í maí á næsta ári við fulltrúa frá 50 þjóðlöndum. Starfsfólk heimavistar óskar Ásgerði til hamingju með sigurinn.

Vaktsími á heimavist

Minnum foreldra og forráðamenn á að hægt er að ná í starfsmann á vakt allan sólarhringinn. Númerið er 899 1602 eða 455 1602.

Kosning í Heimavistarráð skólaárið 2013-2014

Kosning í Heimavistarráð hefur farið fram og var Ágúst Gestur Guðbjargarson kosinn forseti . André Sandö fékk kosningu í embætti varaforseta og Eyrún Þórsdóttir í embætti ritara. Við óskum þeim öllum til hamingju.

Heimavistarráð veturinn 2013 – 2014

Kosning hefur farið fram í Heimavistarráð MA og VMA fyrir veturinn 2013 – 2014. Við bjóðum nýja fulltrúa velkomna og óskum þeim velfarnaðar í þeim fjölmörgu störfum sem þeir taka að sér í þágu íbúanna. Úrslit kosninganna er sem hér segir í stafrófsröð: André Sandö Ágúst Gestur Guðbjargarson Dion Helgi Duff Hrafnkelsson Eyrún Þórsdóttir Kristín Júlía Ásgeirsdóttir Lilja Björg Jónsdóttir Pálmi John Price Þórarinsson

Tveir íbúar heimavistarinnar fengu Forsetamerki skátahreyfingarinnar

Tveir íbúar heimavistarinnar þær Agnes Ósk Hreinsdóttir og Elva Dögg Káradóttir fengu Forsetamerki skátahreyfingarinnar afhent við hátíðlega athöfn laugardaginn 28. september s.l. Forseti Íslands afhenti Forsetamerkið við hátíðlega athöfn í Bessastaðakirkju en merkið er veitt fyrir sérstakan árangur í skátastarfi. Alls voru átján skátar sem fengu forsetamerkið afhent.