Skrifstofur heimavistar lokaðar í júlí

Skrifstofur heimavistar verða lokaðar í júlí vegna sumarleyfa starfsmanna.

Fyrir umsækjendur heimavistar skólaárið 2014-2015

Hér koma svör við helstu spurningum fyrir umsækjendur heimavistar skólaárið 2014-2015: Svör við umsóknum fara í póst 25. júní. Mikill fjöldi umsókna barst og ljóst að einhverjir lenda á biðlista en skólarnir sáu um að forgangsraða inn á vistina. Greiðsluseðlar/kröfur vegna staðfestingar- og tryggingargjalds verða stofnaðir/-ar á kennitölu íbúa í innheimtukerfi Arion banka. Eindagi staðfestingar- og tryggingargjalds er 10. júlí. Ef krafa er ekki greidd á eindaga er gert ráð fyrir að viðkomandi hafi hætt við búsetu á vistinni og nemendur teknir inn af biðlista. Tekið verður inn af biðlista eftir miðjan júlí. Raðað verður niður á herbergi fyrstu dagana í ágúst. Breytingar á umsókn s.s. varðandi tegund af herbergi eða herbergisfélaga verða að hafa borist fyrir 1. ágúst á netfangið rosa@heimavist.is Leigusamningar og önnur gögn verða sendir í pósti viku fyrir upphaf skóla. Gengið er frá skráningu í mötuneyti við komuna á heimavistina. Staðfestingar- og tryggingargjald fæst ekki endurgreitt ef hætt er við komuna á heimavistina.

Unnið úr umsóknum á heimavist fyrir komandi skólaár

Umsóknarfrestur um heimavist næsta skólaár var til 10. júní s.l. og hafa sjaldan fleiri umsóknir borist. Menntaskólinn á Akureyri og Verkmenntaskólinn á Akureyri sjá um að forgangsraða á vistina og er verið að leggja lokahönd á þá vinnu. Gert er ráð fyrir að umsækjendur fái bréf í vikunni. Rétt er að vekja athygli á að eindagi fyrir staðfestingar- og skráningargjald og tryggingargjald alls kr. 34.000 er 10. júlí. Verði seðilinn ekki greiddur á eindaga er gert ráð fyrir að viðkomandi hafi hætt við búsetu á vistinni og nemendur á biðlista verða teknir inn. Tekið verður inn af biðlista seinni hluta júlímánaðar.

Brautskráning í Menntaskólanum á Akureyri í dag

Starfsfólk heimavistar óskar útskriftarnemendum MA innilega til hamingju með daginn.

Opið fyrir umsóknir um heimavist til 10. júní

Umsóknarfrestur um Heimavist MA og VMA fyrir skólaárið 2014-2015 er til mánudagsins þriðjudagsins 10. júní.

Andlát starfsmanns

Svava Jóhannsdóttir starfsmaður hjá Mötuneyti MA lést föstudaginn 30. júní. Svava starfaði hjá MMA í á þriðja áratug, lengst af í þvottahúsinu. MMA þakkar Svövu fyrir vel unnin störf hjá stofnuninni og sendir aðstandendum hennar samúðarkveðjur. Útförin fer fram frá Munkaþverárkirkju föstudaginn 6. júní kl.13.30.