Gleðilega hátíð

Starfsfólk heimavistar óskar íbúum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar hátíðar. Heimavistin verður opnuð eftir jólafrí sunnudaginn 3. janúar kl. 12.

Brautskráning í Verkmenntaskólanum á Akureyri

Starfsfólk heimavistar óskar útskriftarnemendum Verkmenntaskólans á Akureyri innilega til hamingju með daginn.

Lokað á heimavistinni um jól og áramót

Heimavistinni verður lokað kl. 12:00 á hádegi, laugardaginn 19. desember. Heimavistin verður opnuð eftir jólafrí sunnudaginn 3. janúar kl. 12:00. Áður en íbúar yfirgefa herbergin eru þau vinsamlegast beðin gangið úr skugga um að allt sé eins og það á að vera, s.s. gluggar lokaðir, engin rafmagnstæki í gangi, ísskápur tæmdur og farið sé með rusl í gámana. Bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á nýju ári. Starfsfólk Heimavistar MA og VMA

Laus pláss á heimavistinni á vorönn

Bendum áhugasömum á að það eru laus pláss á heimavistinni á vorönn. Hægt er að sækja um hér á heimasíðunni.

Próf í VMA - umgengni á próftíma

Próftími hefst þriðjudaginn 1. desember kl. 8:00. Reglur á próftíma: Á próftíma á að vera næði allan sólarhringinn. Ekki er heimilt að hafa hjá sér gesti nema með sérstöku leyfi starfsmanns. Ekki eru veitt leyfi fyrir næturgestum meðan á próftíma stendur. Morgunmatur er virka daga kl. 7:15 – 9:15 og um helgar kl. 10:00 – 13:00. Drykkur er alla daga kl. 15:00 - 16:30, einnig um helgar. Hljómflutningstæki og sjónvörp á herbergjum og setustofum mega alls ekki valda ónæði. Seta í anddyri og á göngum skal takmörkuð. Reglulegum próftíma lýkur 14. desember. Hafið samband við öryggisvakt í síma 1602 ef þið verðið fyrir ónæði. Gangi ykkur vel i prófunum Sýnum öll tillitssemi Starfsfólk Heimavistar MA og VMA

Jólahlaðborð Heimavistarráðs 2015

Jólahlaðborð Heimavistarráðs verður haldið miðvikudagskvöldið 25. nóvember frá kl. 17.45-19.30. Íbúum heimavistarinnar verður boðið upp á glæsilegan matseðil í skreyttum matsal. Íbúar eru hvattir til að mæta í snyrtilegum klæðnaði enda tilefnið hátíðlegt.

Uppsagnir á húsaleigusamnigi

Athygli er vakinn á því að uppsagnarfrestur húsaleigusamninga við annarskil er einn mánuður m.v. næstu mánaðarmót frá uppsögn samningsins. Þetta á eingöngu við þá nemendur sem hætta námi. VMA-íbúar sem eru að hætta námi í lok desember verða að skila skriflegri uppsögn fyrir 30. nóvember til að komast hjá því að greiða húsaleigu eftir áramót. Þeir VMA-íbúar sem hætta námi um annarskil vegna ófullnægjandi námsframvindu eiga að senda skriflega uppsögn til undirritaðrar um leið og niðurstaða annarprófa er ljós. Við þessar aðstæður er uppsagnarfresturinn einn mánuður frá næstu mánaðarmótum/áramótum og þeir munu því þurfa að greiða húsaleigu fyrir janúar. MA-íbúar sem ljúka námi í janúar verða að skila skriflegri uppsögn í desember. Þeir sem hætta námi um annarskil vegna ófullnægjandi námsframvindu eiga að senda skriflega uppsögn til undirritaðrar um leið og niðurstaða annarprófa er ljós Við þessar aðstæður er uppsagnarfresturinn einn mánuður frá næstu mánaðarmótum og þeir munu því þurfa að greiða húsaleigu fyrir febrúar. Uppsagnir skal senda á netfangið: rosa@heimavist.is

Skólaheimsóknir

Í tengslum við skólaheimsóknir í MA og VMA komu í gær um 200 nemendur frá fimmtán skólum í nágrannabyggðalögunum í heimsókn. Krakkarnir eru í 9. og 10. bekk fengu kynningu á heimavistinni og var boðið upp á hressingu á setustofunni.

Opið fyrir umsóknir á vorönn 2016

Opnað hefur verið fyrir umsóknir á heimavist vorönn 2016.

Íbúar heimavistar í þættinum Sögur af landi á Rás1

Tveir íbúar heimavistar þau Árni Bæring nemandi við Verkmenntaskólann á Akureyri og Jórunn Rögnvaldsdóttir nemandi við Menntaskólann á Akureyri voru viðmælendur í þættinum Sögur af landi á Rás1, þar sem fjallað var um nám í heimabyggð. Hér er hægt að nálgast þáttinn http://ruv.is/frett/nam-i-heimabyggd-eflir-byggdir-landsins