Greiðsluseðill fyrir staðfestingar- og tryggingargjald skólaárið 2015-2016

Greiðsluseðill fyrir staðfestingar- og tryggingargjald skólaárið 2015-2016 ætti að berast frá Arion banka næstu daga. Upphæð greiðslu er 34.000 kr. (7.000 kr í staðfestingargjald og 27.000 í tryggingargjald). Fyrir mistök var textinn á greiðsluseðlinum rangur þ.e. "Húsaleiga". Beðist er afsökunar á þessu en þetta ætti ekki að koma að sök þar sem íbúar eiga þegar að vera búnir að fá heimsenda reikninga, þar sem upphæðin er sú sama og textinn réttur.

Skrifstofur heimavistar lokaðar í júlí

Skrifstofur heimavistar verða lokaðar í júlí vegna sumarleyfa starfsmanna.

Svör við helstu spurningum fyrir umsækjendur heimavistar skólaárið 2015-2016

Hér koma svör við helstu spurningum fyrir umsækjendur heimavistar skólaárið 2015-2016: Svör við umsóknum fóru í póst 25. júní. Mikill fjöldi umsókna barst og ljóst að einhverjir lenda á biðlista en skólarnir sáu um að forgangsraða inn á vistina. Greiðsluseðlar/kröfur vegna staðfestingar- og tryggingargjalds verða stofnaðir/-ar á kennitölu íbúa eða forráðamanna (ólögráða íbúa) í innheimtukerfi Arion banka. Eindagi staðfestingar- og tryggingargjalds er 20. júlí. Ef krafa er ekki greidd á eindaga er gert ráð fyrir að viðkomandi hafi hætt við búsetu á vistinni og nemendur teknir inn af biðlista. Tekið verður inn af biðlista í byrjun ágúst. Raðað verður niður á herbergi fyrstu dagana í ágúst. Breytingar á umsókn s.s. varðandi tegund af herbergi eða herbergisfélaga verða að hafa borist fyrir 1. ágúst á netfangið rosa@heimavist.is Leigusamningar og önnur gögn verða sendir í pósti viku fyrir upphaf skóla. Gengið er frá skráningu í mötuneyti við komuna á heimavistina. Staðfestingar- og tryggingargjald fæst ekki endurgreitt ef hætt er við komuna á heimavistina.

Unnið úr umsóknum fyrir skólaárið 2015-2016

Umsóknarfrestur um heimavist næsta skólaár var til 10. júní s.l. og hafa sjaldan fleiri umsóknir borist. Nú er verið að vinna úr umsóknum en hægt er að sjá þær vinnureglur sem hafðar eru til hliðsjónar við úthlutun á leigurými á heimavistinni hér á heimasíðunni. Gert er ráð fyrir að hægt verði að senda umsækjendum bréf í lok vikunnar. Rétt er að vekja athygli á að eindagi staðfestingar- og tryggingargjalds alls kr. 34.000 er 20. júlí n.k. Verði seðilinn ekki greiddur á eindaga er gert ráð fyrir að viðkomandi hafi hætt við búsetu á vistinni og nemendur á biðlista verða teknir inn. Tekið verður inn af biðlista í byrjun ágúst.

Brautskráning í Menntaskólanum á Akureyri í dag

Starfsfólk heimavistar óskar útskriftarnemendum Menntaskólans á Akureyri innilega til hamingju með daginn.

Enn hægt að sækja um heimavist - biðlisti

Umsóknarfrestur um heimavist skólaárið 2015-2016 rann út 10. júní s.l. Enn er hægt að sækja um pláss á vistinni en viðkomandi fer sjálfkrafa á biðlista. Gert er ráð fyrir að umsækjendur fái svör við umsóknum í kringum 25. júní.

Opið fyrir umsóknir um heimavist til 10. júní

Umsóknarfrestur um Heimavist MA og VMA fyrir skólaárið 2015-2016 er til miðvikudagsins 10. júní.