Heimavistarráð grillar í tilefni af sumarkomu

Í tilefni af sumarkomu ætlar Heimavistarráð í samstarfi við starfsfólk mötuneytisins að grilla fyrir íbúa Sumardaginn fyrsta. Grillað verður frá kl. 17.30 við matsalinn. Mætum með bros á vör og í sumarskapi.

Opið fyrir umsóknir skólaárið 2014-2015

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um heimavist skólaárið 2014-2015.

Laus störf við alþrif í vor

Við heimavistina eru laus störf við alþrif á herbergjum í vor eða frá miðjum maí fram í miðjan júní. Óskað er eftir starfsfólki sem er 18 ára og eldra. Nánari upplýsingar veitir Rósa María í síma 899 1607. Skriflegar umsóknir með nafni, kennitölu og símanúmeri berist á netfangið rosa@heimavist.is Umsóknarfrestur er til 8. maí og verður öllum umsóknum svarað.

Gleðilega páska

Við óskum íbúum og fjölskyldum þeirra gleðilegra páska. Heimavistin verður opnuð aftur mánudaginn 6. april kl. 14.

Opnað fyrir umsóknir um heimavist skólaárið 2015-2016

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um heimavist skólaárið 2014-2015.

Páskabingó miðvikudagskvöldið 25.mars

Heimavistarráð stendur fyrir páskabingói miðvikudagskvöldið 25. mars kl. 20 á setustofu heimavistar. Glæsileg páskaegg verða í boði fyrir heppna íbúa.

Lokað um páskana á heimavist

Heimavistin verður lokuð kl. 12. á hádegi laugardaginn 28. mars. Opnum aftur eftir páskafrí mánudaginn 6. apríl kl. 14.

Ársfundur Lundar

Ársfundur Lundar 2014 verður mánudaginn 16. mars n.k. kl. 16 í setustofu heimavistar. Dagskrá ársfundar: 1. Ársreikningur Lundar skólaárið 2013/2014 til kynningar. 2. Skýrsla stjórnar um starfsemi Lundar skólaárið 2013/2014. 3. Önnur mál. Ársfundur Lundar er opinn þeim sem aðild eiga að Heimavist MA og VMA, s.s. íbúum Lundar, foreldrum og forráðamönnum íbúanna, kennurum og starfsmönnum framhaldsskólanna á Akureyri auk þeirra starfsmanna sem starfa í húsakynnum Lundar.

Skólaheimsóknir

Í gær komu hér um 200 nemendur úr nágrannabyggðalögunum í heimsókn á heimavistina. Nemendurnir eru í 9. og 10. bekk koma úr 15 grunnskólum. Fengu þau kynningu á heimavistinni og var boðið upp á hressingu á setustofunni eins og venja er.

Læknanemar með fræðslu

Kæru íbúar. Miðvikudagskvöldið 4. mars kl. 19:30 ætla nokkrir 2. árs læknanemar að vera með forvarnarfræðslu á setustofunni fyrir íbúa heimavistarinnar. Læknanemarnir eru á vegum „Ástráðs“ félags læknanema um forvarnarstarf. Rætt verður t.d. um kynheilbrigði, ótímabærar þunganir og kynsjúkdóma. Endilega nýtið ykkur að hitta læknanemana til að fræðast og forvitnast.