Skrifstofur heimavistar lokaðar vegna sumarleyfa

Skrifstofur heimavistar verða lokaðar í júlí vegna sumarleyfa starfsmanna. Skrifstofur verða opnaðar aftur föstudaginn 4. ágúst.

Svör við helstu spurningum fyrir umsækjendur

Hér koma svör við helstu spurningum fyrir umsækjendur heimavistar skólaárið 2017-2018: Svör við umsóknum fóru í póst 20. júní s.l. Mikill fjöldi umsókna barst og ljóst að einhverjir lenda á biðlista. Enn er opið fyrir umsóknir á biðlista og skýrist staðan á umsóknunum í ágúst. Greiðsluseðlar/kröfur vegna staðfestingar- og tryggingargjalds verða stofnaðir/-ar á kennitölu íbúa eða forráðamanna (ólögráða íbúa) í innheimtukerfi Arion banka. Eindagi staðfestingar- og tryggingargjalds er 14. júlí. Ef krafa er ekki greidd á eindaga er gert ráð fyrir að viðkomandi hafi hætt við búsetu á vistinni og nemendur teknir inn af biðlista. Tekið verður inn af biðlista í byrjun ágúst. Raðað verður niður á herbergi fyrstu dagana í ágúst. Breytingar á umsókn s.s. varðandi tegund af herbergi eða herbergisfélaga verða að hafa borist fyrir 1. ágúst á netfangið rosa@heimavist.is Leigusamningar og önnur gögn verða sendir í pósti viku fyrir upphaf skóla. Gengið er frá skráningu í mötuneyti við komuna á heimavistina. Staðfestingar- og tryggingargjald fæst ekki endurgreitt ef hætt er við komuna á heimavistina.

Brautskráning frá Menntaskólanum á Akureyri í dag

Starfsfólk heimavistar óskar útskriftarnemendum Menntaskólans á Akureyri innilega til hamingju með daginn.

Enn hægt að sækja um heimavist - biðlisti

Umsóknarfrestur um heimavist skólaárið 2017-2018 rann út 9. júní s.l. Enn er hægt að sækja um pláss á vistinni en viðkomandi fer sjálfkrafa á biðlista. Gert er ráð fyrir að umsækjendur fái svör við umsóknum í kringum 23. júní.

Unnið úr umsóknum

Umsóknarfrestur um heimavist næsta skólaár var til 9. júní s.l. Unnið verður úr umsóknum næstu viku en hægt er að sjá þær vinnureglur sem hafðar eru til hliðsjónar við úthlutun á leigurými á heimavistinni hér á heimasíðunni. Gert er ráð fyrir að hægt verði að senda umsækjendum bréf um 20. júní. Rétt er að vekja athygli á að staðfestingar- og tryggingargjald er alls kr. 45.000 sem greiða þarf í júlí. Verði seðilinn ekki greiddur á eindaga í júlí er gert ráð fyrir að viðkomandi hafi hætt við búsetu á vistinni og nemendur á biðlista verða teknir inn. Tekið verður inn af biðlista í byrjun ágúst.

Opið fyrir umsóknir fyrir næsta skólaár

Opið fyrir umsóknir fyrir næsta skólaár. Umsóknarfrestur um Heimavist Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri fyrir skólaárið 2017 - 2018 er til 9. júní. Sótt er um rafrænt á heimasíðunni.