Skrifstofur heimavistar lokaðar vegna sumarleyfa

Skrifstofur heimavistar verða lokaðar frá 25. júní vegna sumarleyfa starfsmanna. Skrifstofur verða opnaðar aftur föstudaginn 3. ágúst.

Svör við helstu spurningum fyrir umsækjendur

Hér koma svör við helstu spurningum fyrir umsækjendur heimavistar skólaárið 2018-2019: Svör við umsóknum fóru í póst 19. júní. Enn er opið fyrir umsóknir á biðlista og skýrist staðan á umsóknunum í ágúst. Greiðsluseðlar/kröfur vegna staðfestingar- og tryggingargjalds verða stofnaðir/-ar á kennitölu íbúa eða forráðamanna (ólögráða íbúa) í innheimtukerfi Arion banka. Eindagi staðfestingar- og tryggingargjalds er 16. júlí. Ef krafa er ekki greidd á eindaga er gert ráð fyrir að viðkomandi hafi hætt við búsetu á vistinni og nemendur teknir inn af biðlista. Tekið verður inn af biðlista í byrjun ágúst. Raðað verður niður á herbergi fyrstu dagana í ágúst. Breytingar á umsókn s.s. varðandi tegund af herbergi eða herbergisfélaga verða að hafa borist fyrir 1. ágúst á netfangið rosa@heimavist.is Leigusamningar og önnur gögn verða sendir í pósti viku fyrir upphaf skóla. Gengið er frá skráningu í mötuneyti við komuna á heimavistina. Staðfestingar- og tryggingargjald fæst ekki endurgreitt ef hætt er við komuna á heimavistina.

Brautskráning frá Menntaskólanum á Akureyri í dag

Starfsfólk heimavistar óskar útskriftarnemendum Menntaskólans á Akureyri innilega til hamingju með daginn.

Enn hægt að sækja um heimavist - biðlisti

Umsóknarfrestur um heimavist skólaárið 2018-2019 rann út 8. júní s.l. Enn er hægt að sækja um pláss á vistinni en viðkomandi fer sjálfkrafa á biðlista. Gert er ráð fyrir að umsækjendur fái svör við umsóknum í kringum 20. júní.