Laus störf fyrir íbúa

Heimavistin auglýsir eftir íbúum til að aðstoða við þrif o.fl. (ryksuga, fylla á lagera o.s.frv.) nokkra tíma á viku eftir skóla (1-2 klst. í senn). Nánari upplýsingar veita Halla Sif og Rósa María. Umsóknir með upplýsingum um fullt nafn, kennitölu og símanúmeri sendast á netfangið heimavist@heimavist.is fyrir 15. september nk.

Hjúkrunafræðingur á vakt tvisvar í viku fyrir íbúa

Hannesína Schewing hjúkrunarfræðingur verður á vaktinni fyrir íbúa heimavistar tvisvar í viku. Á mánudögum frá kl. 16:00-17:00 og á fimmtudögum frá kl. 16.30-17.30. Bendum foreldrum og forráðamönnum á að hægt er að hringja í hjúkrunarfræðing á viðtalstíma.

Móttaka íbúa MA

Verðum með opið fyrir móttöku MA íbúa í dag þriðjudag frá kl. 13-20 og á morgun miðvikudag frá kl. 8.30 - 18.

Vaktsími á heimavist

Minnum á að við svörum allan sólarhringinn í vaktsímann: 899 1602 eða 455 1602.

Móttaka íbúa VMA

Fyrstu íbúar þetta skólaárið koma til okkar í dag en við verðum með opið fyrir móttöku VMA íbúa frá kl. 13-20 og á morgun frá kl. 8.30 - 18.

Notkun rafretta í húsnæði heimavistar getur varðað brottvísun

Minnum íbúa á að notkun rafretta í húsnæði heimavistar er stranglega bönnuð og getur varðað brottvísun. Hægt er að kynna sér reglur heimavistar nánar hér á heimasíðunni.

Hagnýtar upplýsingar fyrir nýja íbúa á heimavist

Hér eru ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir nýja íbúa sem eru að flyta á heimavistina. Þegar íbúar koma á heimavistina þurfa þeir að hafa með sér: Sæng og kodda. Sængurver, koddaver og lök. Handklæði og rúmteppi ef vill. Körfu eða annað hentugt undir óhreinan þvott. Herðatré. Leirtau, hnífapör og glös/könnur eru ekki til staðar á herbergjum. Hlífðarlök eru til staðar og hægt að fá til skiptanna í anddyri. Íbúar fá tuskur, svampa og þvottaefni til að þrífa herbergi og baðherbergi þar sem það á við. Ryksugur og moppur eru til staðar á hverri hæð fyrir sig. Íbúar geta endurraðað húsgögnum á herbergjum en verða að skilja við þau eins og þau komu að þeim í upphafi. Íbúar geta aðeins hengt upp myndir eða annað á veggi með "kennaratyggjói" til að koma í veg fyrir að málningin skemmist. Íbúar á nýju vist hafa aðgang á herbergjum að örbylgjuofni og litlum ísskáp. Þeir íbúar sem eru á gömlu vist hafa ekki aðgang að ísskáp á herbergjum, en sumir koma með lítin kæliskáp með sér. Íbúar geta fengið að geyma töskur á svokölluðu töskulofti. Þá er aðstaða í kjallara til að geyma skauta, skíði, skíðaklossa o.s.frv.

Styttist í opnun heimavistar fyrir íbúa VMA

Nú styttist í að Verkmenntaskólinn hefji starfsemi sína og heimavistin opni fyrir íbúum skólans. Heimavistin verður opnuð fyrir innritun íbúa VMA sunnudaginn 19. ágúst frá klukkan 13:00 til 20 og mánudaginn 21. ágúst frá klukkan 08:30 til 18.

Móttaka íbúa VMA

Við höfum tekið aftur til starfa eftir sumarfrí og byrjuð að undirbúa komu íbúa. Móttaka íbúa Verkmenntaskólans á Akureyri er sunnudaginn 19. ágúst frá klukkan 13:00 til 20:00 og mánudaginn 20. ágúst frá klukkan 08:30 til 18:00. Kennsla hefst í VMA samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 21. ágúst. Íbúar ættu að fá samninga og önnur gögn frá okkur í pósti eftir helgina.