Bíókvöld í boði Heimavistarráðs

Heimavistarráð stendur fyrir bíókvöldi fimmtudagskvöldið 31. janúar n.k. kl. 20. Mynd og snakk í boði fyrir alla íbúa.

Gangafundir þriðjudaginn 22. janúar

Þriðjudaginn 22. janúar verða s.k. gangafundir á heimavistinni. Fundirnir eru upplýsingafundir fyrir íbúa þar sem farið er yfir ýmsar reglur og annað sem er gagnlegt fyrir íbúana að vita af. Við fengum inn nýja íbúa á stóra heimilið nú í byrjun árs og einhverjar breytingar hafa átt sér stað á búsetu þeirra íbúa sem komu inn í haust. Fundirnir eru því tækifæri til að sjá hverjir eru nágrannar og eins hverjir búa í næsta nágrenni, en fundunum er skipt niður eftir göngunum/hæðunum á nýju vist og síðan göngunum á gömlu vist. Tímasetningar á fundunum verða hengdar upp á nýju og gömlu vist og við minnum á að það er skyldumæting á fundinn. Hlökkum til að hitta alla nýja og eldri íbúa og eiga góða stund saman :)

Viðtalstímar hjúkrunafræðings á vorönn 2019

Hannesína Schewing hjúkrunarfræðingur verður með viðtalstíma á vorönn á mánudögum frá kl. 16 - 17 og á fimmtudögum frá kl. 16:30 - 17:30. Hjúkrunarfræðingur er með aðstöðu í herbergi á skrifstofugangi.

Hagnýtar upplýsingar fyrir nýja íbúa á heimavist

Hagnýtar upplýsingar fyrir nýja íbúa sem eru að flyta á heimavistina nú á vorönn. Þegar íbúar koma á heimavistina þurfa þeir að hafa með sér: Sæng og kodda. Sængurver, koddaver og lök. Handklæði og rúmteppi ef vill. Körfu eða annað hentugt undir óhreinan þvott. Herðatré. Leirtau, hnífapör og glös/könnur eru ekki til staðar á herbergjum. Hlífðarlök eru til staðar og hægt að fá til skiptanna í anddyri. Íbúar fá tuskur, svampa og þvottaefni til að þrífa herbergi og baðherbergi þar sem það á við. Ryksugur og moppur eru til staðar á hverri hæð fyrir sig. Íbúar geta endurraðað húsgögnum á herbergjum en verða að skilja við þau eins og þau komu að þeim í upphafi. Íbúar geta aðeins hengt upp myndir eða annað á veggi með "kennaratyggjói" til að koma í veg fyrir að málningin skemmist. Íbúar á nýju vist hafa aðgang á herbergjum að örbylgjuofni og litlum ísskáp. Þeir íbúar sem eru á gömlu vist hafa ekki aðgang að ísskáp á herbergjum, en sumir koma með lítin kæliskáp með sér. Íbúar geta fengið að geyma töskur á svokölluðu töskulofti. Þá er aðstaða í kjallara til að geyma skauta, skíði, skíðaklossa o.s.frv.

Heimavistin opnuð á nýju ári

Heimavistin verður opnuð aftur á nýju ári sunnudaginn 6. janúar kl. 12:00.