Jólahlaðborð Heimavistarráðs 2019

Glæsilegt jólahlaðborð Heimavistarráðs framundan Jólahlaðborð Heimavistarráðs verður haldið miðvikudagskvöldið 4. desember n.k. frá kl. 17.30-19.30 fyrir alla íbúa. Boðið verður upp á glæsilegan matseðil í skreyttum matsal og við hvetjum íbúa til að mæta í snyrtilegum klæðnaði enda tilefnið hátíðlegt.

Laufabrauðsgerð Heimavistarráðs

Heimavistarráð stendur fyrir laufabrauðsgerð fimmtudagskvöldið 28. nóvember kl. 20 í matsalnum. Hvetjum alla íbúa til að mæta og hjálpast að við að skera út kökur sem verða síðan í boði á jólahlaðborðinu í byrjun desember. Boðið verður upp á kakó og piparkökur.

Uppsagnir á húsaleigusamningum fyrir þá íbúa sem hætta námi

Kæru íbúar, Athygli er vakin á að uppsögn á húsaleigusamningi við annarskil hjá bæði MA og VMA er 30. nóvember n.k. Skila þarf skriflegri uppsögn fyrir þann tíma til að komast hjá að greiða húsaleigu eftir annarskil. Þeir íbúar sem hætta námi um annarskil vegna ófullnægjandi námsframvindu þurfa að senda skriflega uppsögn til undirritaðrar um leið og niðurstaða annarprófa liggur fyrir. Athugið að við þessar aðstæður er uppsagnarfresturinn einn mánuður eftir annarskil. Uppsagnir skal senda á netfangið rosa@heimavist.is

Opið fyrir umsóknir um heimavist vorið 2020

Nú er hægt að sækja um heimavist fyrir vormisseri 2020. Sótt er um á heimasíðunni og í kjölfarið verður haft samband við umsækjendur. Bendum á að þeir sem eru þegar íbúar hjá okkur þurfa ekki að sækja um.