Borðsímar á herbergjum íbúa óvirkir um tíma

Rétt er að árétta að borðsímar á herbergjum íbúa eru óvirkir vegna uppsetningar á nýju öflugu neti. Við eigum von á nýjum símtækjum til landsins en það enn nokkur bið í þau.

Móttaka íbúa Menntaskólans á Akureyri

Heimavistin verður opin fyrir innritun mánudaginn 26. ágúst frá klukkan 13:00 til 20:00 og þriðjudaginn 27. ágúst frá klukkan 08:30 til 18:00. Skólasetning í MA er þriðjudaginn 27. ágúst kl. 9.30.

Viðvera hjúkrunarfræðings á heimavist í vetur

Hannesína Schewing hjúkrunarfræðingur verður á vaktinni fyrir íbúa heimavistar mánudaga og fimmtudaga frá kl. 16.30-17.30. Bendum foreldrum og forráðamönnum á að hægt er að hringja í hjúkrunarfræðing á viðtalstíma.

Húsaleigusamningar MA íbúa farnir í póst

Húsaleigusamningar MA íbúa fóru í póst í gær og ættu því að berast íbúum eftir helgina. Reynt var að verða við óskum íbúa um herbergi eins og hægt var.

Móttaka íbúa Verkmenntaskólans á Akureyri

Heimavistin verður opin fyrir innritun sunnudaginn 18. ágúst frá klukkan 13:00 til 20:00 og mánudaginn 19. ágúst frá klukkan 08:30 til 18:00. Móttaka nýnema í VMA er mánudaginn 19. ágúst og kennsla hefst samkvæmt stundatöflu þriðjudaginn 20. ágúst.

Vaktsíminn á heimavist

Vaktsíminn hefur lokið sumarfríinu. Svörum í síma 8991602

Húsaleigusamningar VMA íbúa farnir í póst!

Húsaleigusamningar VMA íbúa fóru í póst fyrir helgi og ættu því að berast íbúum næstu daga. Reynt var að verða við óskum íbúa um herbergi eins og hægt var.

Laus pláss á heimavistinni næsta skólaár

Það eru laus pláss hjá okkur á heimavistinni næsta skólaár. Hægt er að sækja um hér á heimasíðunni.

Hagnýtar upplýsingar fyrir nýja íbúa heimavistar

Hér eru ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir nýja íbúa sem eru að flyta á heimavistina. Þegar íbúar koma á heimavistina þurfa þeir að hafa með sér: Sæng og kodda. Sængurver, koddaver og lök. Handklæði og rúmteppi ef vill. Körfu eða annað hentugt undir óhreinan þvott. Herðatré. Leirtau, hnífapör og glös/könnur eru ekki til staðar á herbergjum. Hlífðarlök eru til staðar og hægt að fá til skiptanna í anddyri. Íbúar fá tuskur, svampa og þvottaefni til að þrífa herbergi og baðherbergi þar sem það á við. Ryksugur og moppur eru til staðar á hverri hæð fyrir sig. Íbúar geta endurraðað húsgögnum á herbergjum en verða að skilja við þau eins og þau komu að þeim í upphafi. Íbúar geta aðeins hengt upp myndir eða annað á veggi með "kennaratyggjói" til að koma í veg fyrir að málningin skemmist. Íbúar á nýju vist hafa aðgang á herbergjum að örbylgjuofni og litlum ísskáp. Þeir íbúar sem eru á gömlu vist hafa ekki aðgang að ísskáp á herbergjum, en sumir koma með lítin kæliskáp með sér. Íbúar geta fengið að geyma töskur á svokölluðu töskulofti. Þá er aðstaða í kjallara til að geyma skauta, skíði, skíðaklossa o.s.frv.

Undirbúningur fyrir móttöku íbúa VMA

Við höfum tekið aftur til starfa eftir sumarfrí og byrjuð að undirbúa komu íbúa. Móttaka íbúa Verkmenntaskólans á Akureyri er sunnudaginn 18. ágúst frá klukkan 13:00 til 20:00 og mánudaginn 19. ágúst frá klukkan 08:30 til 18:00. Móttaka nýnema í VMA er 19. ágúst og kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 20. ágúst. Íbúar ættu að fá samninga og önnur gögn frá okkur í pósti eftir helgina.