Leikfélag Menntaskólans á Akureyri sýnir Útjför

Leikfélag Menntaskólans á Akureyri sýnir leikritið Útfjör í Samkomuhúsinu á Akureyri undir stjórn Önnu Gunndísar Guðmundsdóttur. Eins og gefur að skilja taka fjölmargir þátt í þessari uppfærslu eða á milli 70-100 nemendur. Mikil ánægja var með frumsýninguna enda fjölbreytni í fyrirrúmi, leikur, söngur, tónlist og gleði. Boðið er upp á nokkrar sýningar og hvetjum við því alla til að fjölmenna.

Íbúi hlaut styrk úr Hvatningarsjóði Kviku

Ester María íbúi okkar hlaut á dögunum styrk úr Hvatningarsjóði Kviku sem hefur m.a. að markmiði að efla umræðu og vitund um mikilvægi iðn- og starfsnáms. Ester er í húsasmíði við Verkmenntaskólann á Akureyri og óskum við henni að sjálfsögðu til hamingju. Á facebook síðu heimavistarinnar má sjá viðtal við Ester.

Störf fyrir íbúa

Heimavistin auglýsir eftir íbúum til að aðstoða við þrif o.fl. (ryksuga, fylla á lagera o.s.frv.) nokkra tíma á viku eftir skóla (1-2 klst. í senn). Nánari upplýsingar veita Halla Sif og Rósa María.

Ársfundur Lundar

Ársfundur Lundar 2018 verður fimmtudaginn 21. febrúar n.k. kl. 16 í setustofu heimavistar. Dagskrá ársfundar: 1. Ársreikningur Lundar skólaárið 2017/2018 til kynningar. 2. Skýrsla stjórnar um starfsemi Lundar skólaárið 2017/2018. 3. Önnur mál. Ársfundur Lundar er opinn þeim sem aðild eiga að Heimavist MA og VMA, s.s. íbúum Lundar, foreldrum og forráðamönnum íbúanna, kennurum og starfsmönnum framhaldsskólana á Akureyri auk þeirra starfsmanna sem starfa í húsakynnum Lundar.

Grunnskólanemendur í heimsókn á heimavistinni

Það verður líf og fjör á heimavistinni í dag þegar við fáum á þriðja hundrað grunnskólanemendur í heimsókn en heimsóknin er hluti af kynningum framhaldsskólana MA og VMA. Nemendur koma úr grunnskólum nágrannasveitafélaga: Hrafnagilsskóla, Dalvíkurskóla, Þelamekurskóla, Grenivíkurskóla, grunnskólanum á Þórshöfn, Valsársskóla, Reykjahlíð, Blönduskóla, Stórutjörnum, Höfðaskóla og Þingeyjarskóla.

Frumsýningin framundan hjá Leikfélagi VMA

Leikfélag Verkmenntaskólans á Akureyri frumsýnir söngleikinn Bugsy Malón í Hofi föstudagskvöldið 8. febrúar n.k.. Eins og gefur að skilja taka fjölmargir þátt í uppfærslunni og eru íbúar okkar þar á meðal. Gert er ráð fyrir nokkrum sýningarkvöldum og eins og leikstjórinn Gunnar Björn G. benti á í viðtali þá er um viðamikla sýningu að ræða sem er myndræn, fjörug og skemmtileg. Hvetjum því alla til að fjölmenna.

Bíókvöld í boði Heimavistarráðs

Heimavistarráð stendur fyrir bíókvöldi fimmtudagskvöldið 31. janúar n.k. kl. 20. Mynd og snakk í boði fyrir alla íbúa.

Gangafundir þriðjudaginn 22. janúar

Þriðjudaginn 22. janúar verða s.k. gangafundir á heimavistinni. Fundirnir eru upplýsingafundir fyrir íbúa þar sem farið er yfir ýmsar reglur og annað sem er gagnlegt fyrir íbúana að vita af. Við fengum inn nýja íbúa á stóra heimilið nú í byrjun árs og einhverjar breytingar hafa átt sér stað á búsetu þeirra íbúa sem komu inn í haust. Fundirnir eru því tækifæri til að sjá hverjir eru nágrannar og eins hverjir búa í næsta nágrenni, en fundunum er skipt niður eftir göngunum/hæðunum á nýju vist og síðan göngunum á gömlu vist. Tímasetningar á fundunum verða hengdar upp á nýju og gömlu vist og við minnum á að það er skyldumæting á fundinn. Hlökkum til að hitta alla nýja og eldri íbúa og eiga góða stund saman :)

Viðtalstímar hjúkrunafræðings á vorönn 2019

Hannesína Schewing hjúkrunarfræðingur verður með viðtalstíma á vorönn á mánudögum frá kl. 16 - 17 og á fimmtudögum frá kl. 16:30 - 17:30. Hjúkrunarfræðingur er með aðstöðu í herbergi á skrifstofugangi.

Hagnýtar upplýsingar fyrir nýja íbúa á heimavist

Hagnýtar upplýsingar fyrir nýja íbúa sem eru að flyta á heimavistina nú á vorönn. Þegar íbúar koma á heimavistina þurfa þeir að hafa með sér: Sæng og kodda. Sængurver, koddaver og lök. Handklæði og rúmteppi ef vill. Körfu eða annað hentugt undir óhreinan þvott. Herðatré. Leirtau, hnífapör og glös/könnur eru ekki til staðar á herbergjum. Hlífðarlök eru til staðar og hægt að fá til skiptanna í anddyri. Íbúar fá tuskur, svampa og þvottaefni til að þrífa herbergi og baðherbergi þar sem það á við. Ryksugur og moppur eru til staðar á hverri hæð fyrir sig. Íbúar geta endurraðað húsgögnum á herbergjum en verða að skilja við þau eins og þau komu að þeim í upphafi. Íbúar geta aðeins hengt upp myndir eða annað á veggi með "kennaratyggjói" til að koma í veg fyrir að málningin skemmist. Íbúar á nýju vist hafa aðgang á herbergjum að örbylgjuofni og litlum ísskáp. Þeir íbúar sem eru á gömlu vist hafa ekki aðgang að ísskáp á herbergjum, en sumir koma með lítin kæliskáp með sér. Íbúar geta fengið að geyma töskur á svokölluðu töskulofti. Þá er aðstaða í kjallara til að geyma skauta, skíði, skíðaklossa o.s.frv.