Jólakveðja

Starfsmenn heimavistar óska íbúum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á nýja árinu.

Brautskráning frá Verkmenntaskólanum á Akureyri

Starfsfólk heimavistar óskar útskriftarnemendum Verkmenntaskólans á Akureyri innilega til hamingju með daginn.

Heimavistin lokuð um jól og áramót !

Heimavistinni verður lokað um hádegi á morgun - 19. desember kl. 12. Opnum aftur eftir áramót 7. janúar kl. 12. Bestu óskir um gleðileg jól !

Breyttur opnunartími á nýju ári!

Vegna breytinga á upphafi vorannar hjá MA og VMA verður heimavistin opnuð seinna á nýju ári. Við lokum húsnæðinu kl. 12:00 á hádegi, laugardaginn 19. desember og opnum aftur eftir jólafrí fimmtudaginn 7. janúar kl. 12:00.

Opið fyrir umsóknir!

Minnum á að opið er fyrir umsóknir fyrir nýja íbúa á vorönn 2021. Haft verður samband við umsækjendur þegar nær dregur. Sótt er um rafrænt á heimasíðunni okkar www.heimavist.is

Heimavistin verður lokuð yfir jól og áramót

Heimavistin verður lokuð yfir jól og áramót. Við lokum húsnæðinu kl. 12:00 á hádegi, laugardaginn 19. desember og opnum aftur eftir jólafrí sunnudaginn 3. janúar kl. 12:00.

Uppsagnir á húsaleigusamningum fyrir þá íbúa sem hætta námi um áramót.

Athygli er vakin á að uppsögn á húsaleigusamningi við annarskil hjá íbúum MA og VMA er 30. nóvember n.k. Skila þarf skriflegri uppsögn fyrir þann tíma til að komast hjá að greiða húsaleigu eftir annarskil. Þeir íbúar sem hætta námi um annarskil vegna ófullnægjandi námsframvindu þurfa að senda skriflega uppsögn til undirritaðrar um leið og niðurstaða annarprófa liggur fyrir. Athugið að við þessar aðstæður er uppsagnarfresturinn einn mánuður eftir annarskil. Uppsagnir skal senda á netfangið maria@heimavist.is Aðrir íbúar eru með húsaleigusamning til vors.

Hjúkrunarfræðingur á vakt á mánudögum og fimmtudögum

Hannesína Schewing hjúkrunarfræðingur verður á vaktinni fyrir íbúa heimavistar í dag frá kl. 16.00-17.00. Hannesína verður hjá okkur á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 16.00-17.00 meðan að hertar reglur gilda vegna COVID og verður með aðstöðu í anddyrinu. Hannesína mun fara inn á herbergi viðkomandi en ef það hentar ekki verður hún með séraðstöðu fyrir íbúa á nýju vist og eins á gömlu vist. Bendum foreldrum og forráðamönnum á að hægt er að hringja í hjúkrunarfræðing á viðtalstíma í síma 455 1611

Grímuskylda !

Grímuskylda ! Nú þurfa allir íbúar að vera með grímu á heimavistinni utan síns herbergis.

Vegna aukningar á smitum á Norðurlandi eystra !

Minnum íbúa og forráðamenn á mikilvægi þess að láta starfsmann á vakt vita ef íbúi hefur fengið boð um að fara í sóttkví frá Rakningarteymi Covid, svo hægt sé að gera viðeigandi ráðstafanir. Munum að við erum öll almannavarnir og að við stöndum í þessu saman.