Engar gestakomur eru leyfðar á heimavist!

Minnum á að vegna fjöldatakmarkana sem í gildi eru vegna COVID-19 eru engar gestakomur leyfðar á heimavist.

Hjúkrunarfræðingur á vakt í dag kl. 16-17.

Hannesína Schewing hjúkrunarfræðingur verður á vaktinni fyrir íbúa heimavistar í dag frá kl. 16.00-17.00. Hannesína verður hjá okkur á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 16.00-17.00 meðan að hertar reglur gilda vegna COVID og verður með aðstöðu í anddyrinu. Hannesína mun fara inn á herbergi viðkomandi en ef það hentar ekki verður hún með séraðstöðu fyrir íbúa á nýju vist og eins á gömlu vist. Bendum foreldrum og forráðamönnum á að hægt er að hringja í hjúkrunarfræðing á viðtalstíma í síma 455 1611

Hjúkrunarfræðingur á vakt í dag!

Ómerktur þvottur í þvottahúsinu bíður eftir eigendum!

Minnum íbúa á að allur þvottur sem fer í þvottahúsið verður að vera merktur með þvottanúmeri sem íbúar hafa fengið úthlutað. Nokkuð hefur safnast upp af þvotti sem ekki er merktur og því ekki hægt að koma honum til skila í þvottahólf íbúa. Íbúar sem sakna einhvers eftir skil í þvottahúsið eru beðnir um að tala við Sigrúnu og Maríu þegar þeir eiga úthlutaðan þvottatíma.

Herbergjaskoðanir hefjast eftir helgi

Reglulegar herbergjaskoðanir hefjast eftir helgi. Herbergi eru skoðuð hálfsmánaðarlega á sama vikudegi. Íbúar eru minntir á skoðun deginum áður með auglýsingu á ganginum. Í fyrstu heimsókn verður hengt upp úttektarblað í herberginu 🙂 Minnum íbúa á að eftirlit með þrifum á herbergjum er hluti af reglum á stóra heimilinu. Á hverjum gangi er búið að setja inn í s.k. skol; ryksugu, moppu o.s.frv. Munið að spritta fyrir og eftir notkun með sóttvarnarspritti og þurrkum sem eru einnig til staðar. Inga Bára sér um herbergjaskoðanir og byrjar á gömlu vist á mánudaginn- Baldursheimi og Kvennavist. Gangi ykkur vel í vetur 🙂

Hjúkrunarfræðingur á vakt

Hannesína Schewing hjúkrunarfræðingur verður á vaktinni fyrir íbúa heimavistar í dag frá kl. 16.00-17.00. Hannesína verður hjá okkur á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 16.00-17.00 meðan að hertar reglur gilda vegna COVID og verður með aðstöðu í anddyrinu. Hannesína mun fara inn á herbergi viðkomandi en ef það hentar ekki verður hún með séraðstöðu fyrir íbúa á nýju vist og eins á gömlu vist. Bendum foreldrum og forráðamönnum á að hægt er að hringja í hjúkrunarfræðing á viðtalstíma í síma 455 1611

Húsnæðisbætur

Afrit af húsaleigusamningum íbúa og staðfesting á skólavist fer í póst eftir helgi. Gögnin eru notuð við að sækja um húsnæðisbætur. Ef íbúi er undir lögaldri er sótt um húsnæðisbætur til skrifstofu viðkomandi sveitarfélags þar sem íbúinn á lögheimili. Ef íbúi er orðinn lögráða sækir viðkomandi um rafrænt á www.husbot.is Hvetjum íbúa og forráðamenn að sækja um sem fyrst.

Skipulag á þvottatímum í þvottahúsinu

Það er að fjölga á stóra heimilinu og því nauðsynlegt að bæta við einum lit í hólfin góðu sem skipta húsnæðinu. Í kjölfarið er nú komið nýtt skipulag á þvottatímum í þvottahúsinu. Hér má sjá nýtt skipulag.

Nýtt skipulag á matmálstímum

Það er að fjölga á stóra heimilinu og því nauðsynlegt að bæta við einum lit í hólfin góðu sem skipta húsnæðinu. Blái liturinn tilheyrir 5. og 6. hæð. Þeir íbúar sem voru komnir í hús á 5. hæð fá nýjan lit á lyklakortið og gangurinn merktur upp á nýtt. Biðjum alla að virða þessar breytingar sem eru nauðsynlegar.