Jöfnunarstyrkur

Jöfnunarstyrkur (áður dreifbýlisstyrkur) er námsstyrkur fyrir nemendur sem stunda nám á framhaldsskólastigi fjarri lögheimili og fjölskyldu. Frekari upplýsingar á menntasjodur.is

Matseðill á facebook síðu heimavistar

Minnum á að hægt er að skoða matseðil hverrar viku á facebook síðu heimavistar. Nýr matseðill er birtur á mánudögum.

Hjúkrunarfræðingur á vakt í dag!

Hannesína Schewing hjúkrunarfræðingur verður á vaktinni fyrir íbúa heimavistar í dag frá kl. 16.00-17.00. Hannesína verður hjá okkur á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 16.00-17.00. Bendum foreldrum og forráðamönnum á að hægt er að hringja í hjúkrunarfræðing á viðtalstíma í síma 455 1611.

Gögn fyrir umsóknir um húsnæðisbætur farin í póst!

Afrit af húsaleigusamningum íbúa og staðfesting á skólavist fór í póst í dag og ættu að berast næstu daga á lögheimili íbúa. Ef íbúi er undir lögaldri er sótt um húsnæðisbætur til skrifstofu viðkomandi sveitarfélags þar sem íbúinn á lögheimili. Ef íbúi er orðinn lögráða sækir viðkomandi um rafrænt á www.husbot.is Hvetjum íbúa og forráðamenn að sækja um sem fyrst.

Hjúkrunarfræðingur á vakt í dag!

Hannesína Schewing hjúkrunarfræðingur verður á vaktinni fyrir íbúa heimavistar í dag frá kl. 16.00-17.00. Hannesína verður hjá okkur á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 16.00-17.00. Bendum foreldrum og forráðamönnum á að hægt er að hringja í hjúkrunarfræðing á viðtalstíma í síma 455 1611.

Hjúkrunarfræðingur á vakt í dag!

Hannesína Schewing hjúkrunarfræðingur verður á vaktinni fyrir íbúa heimavistar í dag frá kl. 16.00-17.00. Hannesína verður hjá okkur á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 16.00-17.00. Bendum foreldrum og forráðamönnum á að hægt er að hringja í hjúkrunarfræðing á viðtalstíma í síma 455 1611.

Heimferðaskráning

Bendum íbúum á að skrá sig þegar þau fara af heimavist í sólarhring eða meira, s.s. í helgarfrí. Mikilvægt er að vitað sé hverjir eru á heimavist hverju sinni ef t.d. forráðamaður þarf að ná í íbúa eða að rýma þyrfti húsnæðið.

Móttaka íbúa MA á heimavist

Heimavistin verður opin fyrir innritun sunnudaginn 22. ágúst frá klukkan 13:00 til 20:00 og mánudaginn 23. ágúst frá klukkan 08:30 til 18:00. Hlökkum til að sjá ykkur á heimavistinni.

Hjúkrunarfræðingur á vakt á mánudögum og fimmtudögum

Hannesína Schewing hjúkrunarfræðingur verður á vaktinni fyrir íbúa heimavistar í vetur á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 16.00-17.00 Bendum foreldrum og forráðamönnum á að hægt er að hringja í hjúkrunarfræðing á viðtalstíma í síma 455 1611.

Myndataka fyrir nýja íbúa í mötuneytinu

Bendum nýjum íbúum á að myndataka fyrir augnskanna í mötuneytinu stendur nú yfir milli kl. 14 og 17 alla virka daga í mötuneytinu.