UMSÓKN UM HEIMAVIST

Umsókn um heimavist Hér til hliðar má finna umsókn um heimavist fyrir veturinn 2008-2009. Þegar hún hefur verið fyllt út þarf að koma henni hingað til okkar á heimavistina Það má gera það á þrennan hátt. Með pósti og þá stílað á Lundur heimavist MA/VMA Eyrarlandsvegi 28, 600 Akureyri og bt. Sigmundar Með tölvupósti á netfangið sigmundur@heimavist.is og þarf þá að fylla út umsóknareyðublað og senda sem viðhengi. Nú eða bara með því að koma og afhenda starfsmanni umsóknina og líta á húsakynni í leiðinni. Núverandi íbúar eru beðnir um að skila umsóknum í anddyri eða til húsbónda. A.T.H. Allar séróskir t.d. um herbergi, herbergisfélaga, nágranna eða aðrar óskir þurfa að koma fram á umsókn eða berast á netfangið sigmundur@heimavist.is ekki síðar en 1. ágúst. Viljum við sérstaklega benda nýnemum á að senda inn sínar óskir á netfangið hér að ofan þar sem aðeins er boðið upp á að haka við heimavist á rafrænni umsókn um skólavist en ekki tilgreina óskir. Umsóknarfrestur er til 11. júní.

Takk fyrir okkur

  Nú er síðasta vikan á þessu skólaári runninn upp. Síðasti matseðill vetrarins frá mötuneytinu kom inn á síðuna í morgun. Heimavistarráð skólaárið 2007-2008 þakkar fyrir sig og vonar um leið að allir hafi átt góðan vetur ! Gleðilegt  sumar og takk fyrir okkur .   kveðjur, Heimavistarráð.