Nokkur atriði sem mikilvægt er að hafa í huga þegar farið er heim í haustfrí

Kæru íbúar! Áður en þið farið heim í vetrarfrí vinsamlegast munið að: - Hafa herbergin snyrtileg, þá verður svo gaman að koma aftur. - Fara með allt rusl af herbergjum út í gám. - Slökkva á rafmagnstækjum (nema ísskáp) og ljósum. - Tæma ísskáp og örbylgjuofn. - Loka gluggum. - Stilla ofna á 3. - Skrá brottför í heimferðaskráningu á heimasíðunni. Muna að kíkja í þvottahúsið og tæma þvottahólfið. Herbergjaskoðanir verða áfram á sömu dögum og vanalega. Kær kveðja, Starfsfólk Heimavistar MA og VMA

Uppsagnir á húsaleigusamningum fyrir þá íbúa sem hætta námi um áramót

Athygli er vakin á að uppsögn á húsaleigusamningi við annarskil hjá bæði MA og VMA íbúum er 30. nóvember n.k. Gildir aðeins fyrir þá íbúa sem hætta námi um áramót. Skila þarf skriflegri uppsögn fyrir þann tíma til að komast hjá því að greiða húsaleigu eftir annarskil. Best er að senda tölvupóst. Þeir íbúar sem hætta námi um annarskil vegna ófullnægjandi námsframvindu þurfa að senda skriflega uppsögn í tölvupósti um leið og niðurstaða annarprófa liggur fyrir. Athugið að við þessar aðstæður er uppsagnarfresturinn einn mánuður eftir annarskil. Uppsagnir skal senda á netfangið rosa@heimavist.is

Nýtt heimavistarráð skólaárið 2026 - 2027

Kosið var til Heimavistarráðs í síðustu viku, miðvikudaginn 30. september. Í heimavistarráði skólaárið 2026-2027 eru: Ari Ingvarsson (MA) Ágúst Helgi Franklínsson (VMA) Bæring Nói Dagsson (MA) Friðrik Árnason (MA) Jóhann Lars Palleq Sigvarðsson (VMA) Steingrímur Árni Jónsson (MA) Sædís Ósk Pálmadóttir (VMA)

Varað við hvassviðri um land allt á miðvikudag 14. október

Við viljum biðja alla íbúa um að hafa glugga á nýju vist lokaða á morgun, miðvikudaginn 14. október, framm að hádegi fimmtudag, þar sem spáð er miklu hvassviðri og hætta er á foktjóni. Einnig bendum við á að það er ekkert ferðaveður á milli landshluta á meðan viðvörun er í gildi.