Minnum íbúa á að tilkynna um veikindi

Minnum íbúa á að láta starfsfólk heimavistar vita ef þeir eru veikir. Hægt er að hringja í innanhússíma 1602 eða í 899 1602. Starfsfólk getur litið við hjá íbúum, komið með mat, hitamæli o.þ.h.

Óskilamunir frá síðasta vetri

Ágætu íbúar. Óskilamunir frá sl. vetri eru á palli fyrir framan setustofu. Vinsamlegast kíkið og sjáið hvort þið eigið eitthvað. Eftir mánudaginn verður dótið sem eftir er fjarlægt. Starfsfólk Heimavistar MA og VMA

Gangafundir á mánudag og þriðjudag

Gangafundir á nýju vist verða haldnir sem hér segir: Mánudaginn 22. september Íbúar á 1. hæð kl. 19:00 Íbúar á 2. hæð kl. 19:30 Íbúar á 3. hæð kl. 20:00 Fundarstaður er á viðkomandi gangi Þriðjudaginn 23. september Íbúar á 4. hæð kl. 18:00 Íbúar á 5. og 6. hæð kl. 18:30 (íbúar 6. hæðar komi á 5. hæð) Gangafundur fyrir íbúa gömlu vistar kl. 19:00 og er fundurinn haldinn í Setustofunni Skyldumæting og nafnakall

Störf í boði....

Óskum eftir íbúum til starfa við þrif o.fl. nokkra tíma á viku á heimavistinni. Nánari upplýsingar fást hjá Rósu Maríu. Umsóknir með upplýsingum um fullt nafn, kennitölu og símanúmer sendast á netfangið rosa@heimavist.is fyrir 26. september nk.

Íbúi heimavistar gullverðlaunahafi á Íslandsmeistaramóti

Þorgbergur Guðmundsson íbúi á heimavist og nemandi í VMA varð stigameistari í réttstöðulyfu í 120+ kg flokki karla á Íslandsmeistaramóti sem haldið var í Smáranum um síðustu helgi. Í karla­flokki var keppn­in tví­sýn fram­an af, eða þar til Þor­berg­ur gerði sér lítið fyr­ir og togaði upp 340 kg í síðustu lyftu móts­ins í +120 kg flokki ung­linga og fékk 190,026 stig. Starfsfólk Heimavistar MA og VMA óskar Þorbergi til hamingju með árangurinn.

Heimavistin verður opnuð fyrir innritun MA íbúa sunnudaginn 14. september

Nú styttist í að Menntaskólinn hefji starfsemi sína og heimavistin opni fyrir íbúum skólans. Heimavistin verður opnuð fyrir innritun sunnudaginn 14. september frá klukkan 13 til 20 og mánudaginn 15. september frá klukkan 8:30 til 20. Mennstaskólinn verður settur mánudaginn 15. september. Íbúar eiga þegar að hafa fengið leigusamninga og önnur gögn send í pósti.

Heita vatnið

Kæru íbúar. Vegna viðgerða hjá Norðurorku verður ekkert heitt vatn í húsinu frá kl. 04:00 og fram eftir degi, aðfararnótt fimmtudagins 4. september.