13.11.2026
Kæru íbúar! Við viljum biðja alla íbúa um að hafa alla glugga, sérstaklega á nýju vist, lokaða í dag og á morgun, 13.-14. nóvember, þar sem spáð er miklu hvassviðri og hætta er á foktjóni. Einnig bendum við á að það er ekkert ferðaveður á milli landshluta. Góða helgi!
13.10.2026
Við viljum biðja alla íbúa um að hafa glugga á nýju vist lokaða á morgun, miðvikudaginn 14. október, framm að hádegi fimmtudag, þar sem spáð er miklu hvassviðri og hætta er á foktjóni.
Einnig bendum við á að það er ekkert ferðaveður á milli landshluta á meðan viðvörun er í gildi.
06.02.2026
Heimavistin auglýsir eftir íbúum til að aðstoða við þrif o.fl. (ryksuga, fylla á lagera o.s.frv.) nokkra tíma á viku eftir skóla (1-2 klst. í senn). Nánari upplýsingar veitir Rósa Margrét - rosa@heimavist.is
Óskum eftir samviskusömum og duglegum íbúum til að aðstoða starfsfólk okkar við að halda Heimavistinni hreinni og snyrtilegri. Starfið felst í því að ryksuga ganga og önnur létt þrif.