27.02.2024
Ársfundur Lundar 2023 verður þriðjudaginn 5. mars n.k. kl. 12 í setustofu heimavistar.
Dagskrá ársfundar:
1. Ársreikningur Lundar skólaárið 2022/2023 til kynningar.
2. Skýrsla stjórnar um starfsemi Lundar skólaárið 2022/2023.
3. Önnur mál.
Ársfundur Lundar er opinn þeim sem aðild eiga að Heimavist MA og VMA, s.s. íbúum Lundar, foreldrum og forráðamönnum íbúanna, kennurum og starfsmönnum framhaldsskólana á Akureyri auk þeirra starfsmanna sem starfa í húsakynnum Lundar.
15.02.2024
Á setustofunni hafa íbúar aðgang að Viaplay, Stöð 2 og Stöð 2 Sport í sjónvarpinu.
29.01.2024
Minnum íbúa á að láta starfsfólk heimavistar vita ef þeir eru veikir. Hægt er að hringja í innanhússíma 455-1602 eða í vaktsíma 899-1602. Starfsfólk getur litið við hjá íbúum, komið með mat, hitamæli o.þ.h. eftir því sem þörf er á.
18.01.2024
Mjög mikilvægt er að merkja þvottinn sinn vel - og það gæti þurft að skrifa ofan í það sem merkt var fyrr í vetur svo fatnaðurinn komist í rétt hólf.
Nokkuð er um að ómerktur eða illa merktur fatnaður hafi verið settur í þvott og því ekki hægt að koma til skila í þvottaskápana. Hægt er að merkja þvottinn hjá starfsmönnum í þvottahúsinu.
16.01.2024
Heimavistarráð stendur fyrir spilakvöldi á setustofunni kl 20-22 á miðvikudaginn, 17. janúar.
01.01.2024
Um leið og við óskum ykkur gleðilegs árs þá minnum við á að heimavistin opnar á nýju ári miðvikudaginn 3. janúar kl. 12. Hlökkum til að sjá ykkur😊
08.01.2024
Nokkuð er um að ómerktur fatnaður hafi verið settur í þvott og því ekki hægt að koma til skila í þvottaskápana. Minnum íbúa á að vera duglegir við að merkja allan þvott hjá sér svo hann rati aftur til eigenda sinna. Hægt er að merkja þvottinn hjá starfsmönnum í þvottahúsinu.
Munið líka að flokka þvottinn í viðeigandi þvottahólf 🙂