Vaktsíminn

Athugið að eitthvað ólag hefur verið á símkerfinu hjá okkur en bendum á að hægt er að ná í starfsmenn í vaktsímann -899 1602.

Hagnýtar upplýsingar fyrir nýja íbúa!

Hér eru ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir nýja íbúa sem eru að flyta á heimavistina. Þegar íbúar koma á heimavistina þurfa þeir að hafa með sér: Sæng og kodda. Sængurver, koddaver og lök. Handklæði. Rúmteppi ef vill. Körfu eða annað hentugt undir óhreinan þvott. Herðatré. Leirtau, hnífapör og glös/könnur eru ekki til staðar á herbergjum. Hlífðarlök eru til staðar og hægt að fá til skiptanna í anddyri. Athugið að hlíðarlak þarf að vera á rúmdýnu og einnig lak frá íbúa. Íbúar fá þvottanet með tuskum og svampi. Íbúar fá þvottaefni til að þrífa herbergi og baðherbergi þar sem það á við. Ryksugur og moppur eru til staðar á hverri hæð fyrir sig. Íbúar geta endurraðað húsgögnum á herbergjum en verða að skilja við þau við brottför af heimavist eins og þau komu að þeim í upphafi. Aðeins má hengja upp myndir eða annað á veggi með "kennaratyggjói" til að koma í veg fyrir að málningin skemmist. Bendum á að ekki er hægt að hengja upp ledborða. Íbúar á nýju vist hafa aðgang á herbergjum að örbylgjuofni og litlum ísskáp. Þeir íbúar sem eru á gömlu vist hafa ekki aðgang að ísskáp á herbergjum, en sumir koma með lítin kæliskáp með sér. Íbúar geta fengið að geyma töskur á svokölluðu töskulofti. Þá er læst aðstaða í kjallara til að geyma skauta, skíði, skíðaklossa, hjól o.s.frv.

Undirbúum móttöku íbúa VMA og MA

Við höfum tekið til starfa eftir sumarfrí og erum byrjuð að undirbúa komu íbúa. Móttaka íbúa Verkmenntaskólans á Akureyri er þriðjudaginn 16. ágúst frá klukkan 13:00 til 20:00 og miðvikudaginn 17. ágúst frá klukkan 08:30 til 18:00. Kennsla hefst í VMA samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 18. ágúst. Íbúar VMA ættu að fá samninga og önnur gögn frá okkur í pósti eftir helgina. Móttaka íbúa í MA verður sunnudaginn 21. ágúst og mánudaginn 22. ágúst. Samningar ættu að berast vikunni áður.

Skrifstofur heimavistar lokaðar

Skrifstofur heimavistar verða lokaðar frá 24. júní vegna sumarleyfa starfsmanna. Skrifstofur verða opnaðar aftur þriðjudaginn 2. ágúst. Njótið sumarsins!

Hér koma svör við helstu spurningum fyrir umsækjendur um Heimavist MA og VMA skólaárið 2022-2023

Svör við umsóknum voru send út með tölvupósti 24.júní. Það er enn opið fyrir umsóknir næsta vetur. Umsækjendur sem sækja um eftir 24. júní fá staðfestingu í ágúst eftir sumarleyfi. Greiðsluseðlar/kröfur vegna staðfestingar- og tryggingargjalds verða stofnaðir/-ar á kennitölu íbúa eða forráðamanna (ólögráða íbúa) í innheimtukerfi Arion banka. Eindagi staðfestingar- og tryggingargjalds er 15. júlí. Ef krafa er ekki greidd á eindaga er gert ráð fyrir að viðkomandi hafi hætt við búsetu á vistinni. Raðað verður niður á herbergi fyrstu dagana í ágúst. Breytingar á umsókn s.s. varðandi tegund af herbergi eða herbergisfélaga verða að hafa borist fyrir 1. ágúst á netfangið maria@heimavist.is Leigusamningar og önnur gögn verða sendir í pósti viku fyrir upphaf skóla. Gengið er frá skráningu í mötuneyti við komuna á heimavistina. Staðfestingar- og tryggingargjald fæst ekki endurgreitt ef hætt er við komuna á heimavistina.

Unnið úr umsóknum

Þessa daga er unnið úr þeim umsóknum sem bárust um heimavist fyrir næsta skólaár en beðið er eftir að skólarnir geti staðfest skólavist. Umsækjendur munu fá tölvupóst um staðfestingu um leið og hægt er.

Gleðilega þjóðhátíð

Brautskráning frá Menntaskólanum á Akureyri.

Starfsfólk heimavistar óskar útskriftarnemendum Menntaskólans á Akureyri innilega til hamingju með daginn.

Opið fyrir umsóknir næsta skólaár

Bendum á að enn er hægt að sækja um á heimavistinni næsta skólaár hér á heimasíðunni undir umsóknir.

Opið fyrir umsóknir um heimavist næsta skólaár

Umsóknarfrestur fyrir næsta skólaár 2022-2023 er til 10. júní. Sótt er um hér á heimasíðunni.