Tilkynning frá þvottahúsinu

Kæru íbúar! Vinsamlegast munið að skila bæði þvottaneti og þvottalykli í móttökuna. Munið eftir að tæma þvottahólfið ykkar áður en farið er heim í sumarfrí. Athugið með óskilamuni í hillu frammi í þvottahúsi.

Brottför af heimavist - skil á herbergi

Kæru íbúar ! Nú eru einhverjir íbúar þegar farnir að skila af sér herbergjum og halda út í vorið. Við minnum alla á að þrífa herbergin samviskusamlega og skila þeim eins og þeir tóku við þeim við komuna á stóra heimilið. Áður en þið farið heim, vinsamlegast: Nálgist þrifablað / gátlista í afgreiðslu vegna herbergisþrifa. Sækið vagn með ræstivörum. Skilið lykli/korti af herbergi. Skilið þrifablaði / gátlista útfylltum til starfsmanns. Skilið þvottahúslykli og neti í afgreiðsluna Óhreinar hlífðardýnur eiga að fara í merkta körfu. Brúsar með þrifaefnum og fægiskófla og kústur (þrifið og hreint) niður í móttöku. Hafið alltaf samband við starfsmann við brottför. Gangi ykkur vel í prófum/námsmatsverkefnum Starfsfólk Heimavistar MA og VMA

Reglur á próftíma taka gildi 8. maí

Næðistími á Heimavistinni hefst 8. maí - Á próftíma á að vera næði allan sólarhringinn. - Ekki er heimilt að hafa hjá sér gesti nema með sérstöku leyfi starfsmanns. - Ekki eru veitt leyfi fyrir næturgestum meðan á próftíma stendur. - Tónlist og sjónvörp á herbergjum og á setustofu mega alls ekki valda ónæði. - Seta í anddyri og á göngum skal takmörkuð Hafið samband við starfsmann í vaktsíma 899-1602 ef þið verðið fyrir ónæði. Gangi ykkur vel i prófum og verkefnum. Sýnum öll tillitssemi Starfsfólk Heimavistar MA og VMA

Búið er að opna fyrir umsóknir um Heimavist skólaárið 2026-2027

Búið er að opna fyrir umsóknir um Heimavist skólaárið 2026-2027. Við viljum benda á að bæði nýjir og núverandi íbúar á Heimavistinni þurfa að sækja um á heimavist fyrir næsta skólaár. Sótt er um á forsíðu heimasíðunnar heimavist.is Opið verður fyrir umsóknir til og með 10. júní. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfrestur rennur út eru settar á biðlista.

Umsóknir fyrir næsta skólaár 2026-2027

Við viljum benda á að bæði nýjir og núverandi íbúar á Heimavistinni þurfa að sækja um á heimavist fyrir næsta skólaár. Stefnt er að því að opna fyrir umsóknir í lok apríl. Auglýst verður hér á heimasíðunni og á fb síðu þegar opnað verður fyrir umsóknir. Opið verður fyrir umsóknir til 10. júní. 

Páskalokun kl. 12:00 laugardaginn 28. mars

Senn líður að páskafríi íbúa en báðir framhaldsskólarnir MA og VMA eru með síðasta kennsludag fyrir páska föstudaginn 27. mars. Heimavistin lokar kl. 12 á hádegi laugardaginn 28. mars. Opnum aftur eftir páskafrí mánudaginn 6. apríl, annan í páskum kl. 12. Áður en þið farið í páskafrí munið að: Hafa herbergin snyrtileg, þá verður svo gaman að koma aftur. Fara með ALLT rusl af herbergjum út í gám. Slökkva á rafmagnstækjum og taka úr sambandi – allt nema ísskápinn, en athuga hvort þar séu matvæli sem geta skemmst. Loka gluggum. Stilla ofna á 3. Með Páskakveðju, Starfsfólk Heimavistar MA og VMA.

Páskabingó á miðvikudaginn 25. mars fyrir íbúa heimavistar

Páskabingó miðvikudaginn 25. mars fyrir íbúa heimavistar. Á setustofunni kl. 20:00. Veglegir páskavinningar í boði.

Lokun á Heimavist MA og VMA yfir páskana

Heimavist MA og VMA verður lokað um hádegi, kl. 12:00 laugardaginn 28. mars. Við opnum aftur annan dag páska, mánudaginn 6. apríl. Varðandi lokun í vor þá er það dagsetning á húsaleigusamning sem segir til um lokadagsetningu hjá viðkomandi íbúa. 23. maí er síðasti leigudagur VMA íbúa. 29. maí er síðasti leigudagur MA íbúa.

Námsmatsdagar og vetrarfrí 19. og 20. febrúar

Kæru íbúar! Áður en þið farið heim vinsamlegast munið að: - Hafa herbergin snyrtileg, þá verður svo gaman að koma aftur. - Fara með allt rusl af herbergjum út í gám. - Slökkva á rafmagnstækjum (nema ísskáp) og ljósum. - Tæma ísskáp og örbylgjuofn. - Loka gluggum. - Stilla ofna á 3. - Skrá brottför í heimferðaskráningu á heimasíðunni. Muna að kíkja í þvottahúsið og tæma þvottahólfið.

Ársfundur Lundar - Heimavistar MA og VMA

Ársfundur Lundar 2025 verður fimmtudaginn 5. febrúar n.k. kl. 12 í setustofu heimavistar. Dagskrá ársfundar: 1. Ársreikningur Lundar skólaárið 2024-2025 til kynningar. 2. Skýrsla stjórnar um starfsemi Lundar skólaárið 2024-2025. 3. Önnur mál. Ársfundur Lundar er opinn þeim sem aðild eiga að Heimavist MA og VMA, s.s. íbúum Lundar, foreldrum og forráðamönnum íbúanna, kennurum og starfsmönnum framhaldsskólana á Akureyri auk þeirra starfsmanna sem starfa í húsakynnum Lundar.