Rýmiæfing - Brunaæfing

Rýmiæfing/brunaæfing! Á næstu dögum verður rýmiæfing á heimavistinni í samtarfi við starfsmenn frá Eldvarnaeftirliti Slökkviliðs Akureyrar. Við höldum rýmiæfingu reglulega til að vera eins vel undirbúin og hægt er ef til þess kemur að rýma þurfi húsnæðið vegna raunverulegs bruna. Hvetjum alla íbúa að taka þátt þegar kerfið fer í gang!

Framboð til Heimavistarráðs 2019-2020

Íbúar geta nú boðið sig fram til setu í heimavistarráð en heimavistarráð er hagsmunaráð íbúa og stendur fyrir ýmsum viðburðum og uppákomum fyrir íbúa yfir skólaárið. Ekki missa af þessu tækifæri :)

Lokum fyrir almennan aðgang að netinu í dag!

Minnum íbúa á að ná í notendanafn og aðgangsorð að netinu hjá starfsmanni á vakt. Lokum fyrir almenna aðganginn í dag!

Aðgangsorð að nýja þráðlausa netinu!

Aðgangsorð að nýja þráðlausa netinu eru tilbúin. Íbúar geta nú fengið notendanafn og aðgangsorð að nýja þráðlausa netinu hjá starfsmanni á vakt.

Viðvera hjúkrunarfræðings á heimavist í vetur

Hannesína Schewing hjúkrunarfræðingur verður á vaktinni fyrir íbúa heimavistar mánudaga og fimmtudaga frá kl. 16.30-17.30. Bendum foreldrum og forráðamönnum á að hægt er að hringja í hjúkrunarfræðing á viðtalstíma.

Reglur heimavistar um næturgesti

Við viljum minna íbúa og foreldra/forráðamenn þeirra að kynna sér reglur um næturgesti á heimavist. Þær eru á: http://www.heimavist.is/is/reglur/reglur-um-naeturgesti