Gleðilega hátíð

Starfsfólk heimavistar óskar íbúum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar hátíðar. Heimavistin verður opnuð eftir jólafrí sunnudaginn 4. janúar kl. 12.

Brautskráning í Verkmenntaskólanum á Akureyri

Starfsfólk heimavistar óskar útskriftarnemendum Verkmenntaskólans á Akureyri innilega til hamingju með daginn.

Lokað um jól og áramót

Kæru íbúar. Heimavistinni verður lokað kl. 12:00 á hádegi, laugardaginn 20. desember. Heimavistin verður opnuð eftir jólafrí sunnudaginn 4. janúar kl. 12:00. Áður en þið yfirgefið herbergin, vinsamlegast gangið úr skugga um að allt sé eins og það á að vera, s.s. gluggar lokaðir, engin rafmagnstæki í gangi, ísskápur tæmdur og farið með rusl í gámana. Bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á nýju ári. Starfsfólk Heimavistar MA og VMA

Laus pláss á vistinni á vorönn

Bendum á að það eru nokkur laus pláss á vistinni á vorönn. Hægt er að sækja um hér á heimasíðunni - umsókn um heimavist.

Íbúi heimavistar Ungskáld Akureyrar

Aldís Embla Björnsdóttir íbúi á heimavist og nemandi í MA varð hlutskörpust í samkeppni akureyrskra ungskálda um skapandi skrif fyrir söguna Einræðisherrann. Eins og fram kemur í Vikudegi þá standa Amtsbókasafnið á Akureyri, Akureyrarstofa, Ungmenna-Húsið, Háskólinn á Akureyri, MA og VMA með stuðningi Menningarráðs Eyþings að samkeppninnni. Umsögn dómnefndar: Einræðisherra eftir Aldísi Emblu Björnsdóttur Einræðisherra er forvitnileg og vel stíluð smásaga - eða örsaga. Sjónarhornið er skemmtilegt og sögumaður óvenjulegur - enda ekki oft sem smábörn á fyrsta ári láta móðann mása. En merkilegt nokk er þessi ungi sögumaður trúverðugur. Það kannast margir við þetta eigingjarna, stjórnsama eða hreinlega freka barn sem þarna fær rödd. Hnyttinn endirinn varpar hins vegar nýju ljósi á krílið - og sýnir að hér er á ferð lunkinn höfundur. Starfsfólk heimavistar óskar Aldísi Emblu til hamingju með verðlaunin.

Lokað um jól og áramót

Kæru íbúar. Heimavistinni verður lokað kl. 12:00 á hádegi, laugardaginn 20. desember. Heimavistin verður opnuð eftir jólafrí sunnudaginn 4. janúar kl. 12:00. Áður en þið yfirgefið herbergin, vinsamlegast gangið úr skugga um að allt sé eins og það á að vera, s.s. gluggar lokaðir, engin rafmagnstæki í gangi, ísskápur tæmdur og farið með rusl í gámana. Bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á nýju ári. Starfsfólk Heimavistar MA og VMA

Próf í VMA - umgengni á próftíma

Próftími hefst mánudaginn 1. desember kl. 8:00. Reglur á próftíma: Á próftíma á að vera næði allan sólarhringinn. Ekki er heimilt að hafa hjá sér gesti nema með sérstöku leyfi starfsmanns. Ekki eru veitt leyfi fyrir næturgestum meðan á próftíma stendur. Morgunmatur er virka daga kl. 7:15 – 9:15 og um helgar kl. 10:00 – 13:00. Drykkur er alla daga kl. 15:00 - 16:30, einnig um helgar. Hljómflutningstæki og sjónvörp á herbergjum og setustofum mega alls ekki valda ónæði. Seta í anddyri og á göngum skal takmörkuð. Reglulegum próftíma lýkur 15. desember. Hafið samband við öryggisvakt í síma 1602 ef þið verðið fyrir ónæði. Gangi ykkur vel i prófunum Sýnum öll tillitssemi Starfsfólk Heimavistar MA og VMA

Jólahlaðborð Heimavistarráðs 2014

Jólahlaðborð Heimavistarráðs verður haldið miðvikudagskvöldið 26. nóvember frá kl. 17.30-19.30. Boðið verður upp á glæsilegan matseðil og eru íbúar hvattir til að mæta í snyrtilegum klæðnaði.

Brunaæfing á heimavist á næstu dögum

Á næstu dögum verður haldin brunaæfing á Heimavist MA og VMA. Mjög mikilvægt er að allir íbúar heimavistarinnar taki þátt í æfingunni.

Starfsmenn heimsóttu heimavist Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra

Starfsmenn heimavistar heimsóttu forsvarsmenn heimavistar Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki í gær. Heimavistarstjóri, aðstoðarskólameistari og húsvörður FNV tóku á móti starfsmönnum og sýndu þeim húsakynni. Þá gafst tækifæri til að bera saman reglur og annað sem snýr að utanumhaldi og rekstri heimavistar. Mikil ánægja var með heimsóknina meðal starfsfólks.