19.08.2020
Þriðjudaginn 25. ágúst tökum við á móti nýnemum í MA (1. bekkur). Íbúar og forráðamenn hafa fengið tölvupóst með nánara skipulagi og tímasetningu á móttöku. Þeir sem ekki hafa tök á að koma á úthlutuðum tíma geta haft samband í síma 899 1607 og fengið nýjan tíma úthlutað.
18.08.2020
Sunnudaginn 23. ágúst tökum við á móti íbúum VMA fædd 2003 eða fyrr. Íbúar hafa fengið tölvupóst með nánara skipulagi og tímasetningu á móttöku. Þeir sem ekki hafa tök á að koma á úthlutuðum tíma geta haft samband í síma 899 1607 og fengið nýjan tíma úthlutað.
17.08.2020
Viljum benda íbúum og forráðamönnum MA á að dagsetning á móttöku íbúa verður auglýst um leið og skólabyrjun hjá MA liggur fyrir.
Íbúar og forráðamenn eru beðnir um að fylgjast með á heimasíðu og/eða á facebook síðu.
Tölvupóstur með nánara skipulagi og tímasetningu á móttöku verður sendur út.
17.08.2020
Eins og fram hefur komið hefur skólabyrjun í VMA verið frestað hjá eldri íbúum líkt og öðrum.
Við munum auglýsa hvenær hægt verður að taka á móti eldri íbúum VMA á heimavist um leið og það liggur fyrir.
17.08.2020
Miðvikudaginn 19. ágúst tökum við á móti nýnemum VMA (fæddir 2004 og 2005). Íbúar og forráðamenn hafa fengið tölvupóst með nánara skipulagi og tímasetningu á móttöku. Þeir sem ekki hafa tök á að koma úthlutuðum tíma geta haft samband í síma 899 1607 og fengið nýjan tíma úthlutað.
16.08.2020
Bendum íbúum og forráðamönnum á að nú eru umsóknir um mötuneytið rafrænar. Sótt er um hér á heimasíðunni undir flipanum um mötuneyti og þvottahús.
Athugið að skila þarf umsóknum eigi síðar en 1 viku eftir upphaf skóla. Hjá þeim sem ekki hafa skilað innan tilskilins frests verður innheimt fyrir fullt 7 daga fæði.
16.08.2020
Þvottanúmer fyrir nýnema og aðrar upplýsingar frá mötuneytinu eru farin í póst og ættu að berast íbúum í næstu viku. 🙂
14.08.2020
Húsaleigusamningar MA íbúa fóru í póst í dag og ættu því að berast íbúum í næstu viku. Reynt var að verða við óskum íbúa um herbergi eins og hægt var.
14.08.2020
Eins og fram hefur komið þá hefur skólabyrjun í VMA verið frestað og því breytist tímasetning á móttöku VMA íbúa á heimavist.
Miðvikudaginn 19. ágúst tökum við á móti nýnemum (fæddir 2004 og 2005).
Dagsetning á skólabyrjun hjá eldri íbúum og þeim eldri íbúum sem ekki hafa verið áður á heimavist liggur ekki fyrir en verður birt á Heimasíðu og facebook síðu eftir helgi.
Skipulagið miðast við þær reglur og samkomutakmarkanir sem við búum við vegna COVID-19 og hafa íbúar og forráðamenn fengið tölvupóst þar um.
14.08.2020
Þegar íbúar koma á heimavistina þurfa þeir að hafa með sér:
Handspritt til að hafa á herbergi
Handsápu
Sæng og kodda
Sængurver, koddaver og lök
Handklæði
Rúmteppi ef vill
Körfu eða annað hentugt undir óhreinan þvott
Herðatré
Leirtau, hnífapör og glös/könnur eru ekki til staðar á herbergjum
Hlífðarlök fyrir rúmdýnur eru til staðar og hægt að fá til skiptanna í anddyri. Íbúar þurfa síðan sjálfir að hafa sitt eigið lak
Íbúar fá sérmerkt þvottanet fyrir tuskur og svampa.
Íbúar fá þvottaefni til að þrífa herbergi og baðherbergi þar sem það á við.
Ryksugur og moppur eru til staðar á hverri hæð fyrir sig og þurfa íbúar að sjá um að spritta fyrir og eftir notkun. Sótthreinsispritt verður á hverri hæð í skolunum
Íbúar geta endurraðað húsgögnum á herbergjum en verða að skilja við þau eins og þau komu að þeim í upphafi. Mikilvægt er að passa upp á að skemma ekki gólfefni og húsgögn við flutningana
Íbúar mega aðeins hengja upp myndir eða annað á veggi með "kennaratyggjói" til að koma í veg fyrir að málningin skemmist
Íbúar á nýju vist hafa aðgang á herbergjum að örbylgjuofni og litlum ísskáp. Þeir íbúar sem eru á gömlu vist hafa ekki aðgang að ísskáp á herbergjum, en sumir koma með lítin kæliskáp með sér
Íbúar geta fengið að geyma töskur á svokölluðu töskulofti. Þá er aðstaða í kjallara til að geyma skauta, skíði, skíðaklossa o.s.frv.