Dagsetning á móttöku MA íbúa liggur ekki fyrir en verður auglýst

Viljum benda íbúum og forráðamönnum MA á að dagsetning á móttöku íbúa verður auglýst um leið og skólabyrjun hjá MA liggur fyrir. Íbúar og forráðamenn eru beðnir um að fylgjast með á heimasíðu og/eða á facebook síðu. Tölvupóstur með nánara skipulagi og tímasetningu á móttöku verður sendur út.

Móttaka eldri íbúa VMA liggur ekki fyrir

Eins og fram hefur komið hefur skólabyrjun í VMA verið frestað hjá eldri íbúum líkt og öðrum. Við munum auglýsa hvenær hægt verður að taka á móti eldri íbúum VMA á heimavist um leið og það liggur fyrir.

Móttaka nýnema í VMA (fæddir 2004 og 2005) miðvikudaginn 19. ágúst

Miðvikudaginn 19. ágúst tökum við á móti nýnemum VMA (fæddir 2004 og 2005). Íbúar og forráðamenn hafa fengið tölvupóst með nánara skipulagi og tímasetningu á móttöku. Þeir sem ekki hafa tök á að koma úthlutuðum tíma geta haft samband í síma 899 1607 og fengið nýjan tíma úthlutað.

Rafræn umsókn um mötuneytið

Bendum íbúum og forráðamönnum á að nú eru umsóknir um mötuneytið rafrænar. Sótt er um hér á heimasíðunni undir flipanum um mötuneyti og þvottahús. Athugið að skila þarf umsóknum eigi síðar en 1 viku eftir upphaf skóla. Hjá þeim sem ekki hafa skilað innan tilskilins frests verður innheimt fyrir fullt 7 daga fæði.

Þvottanúmer fyrir nýnema í MA

Þvottanúmer fyrir nýnema og aðrar upplýsingar frá mötuneytinu eru farin í póst og ættu að berast íbúum í næstu viku. 🙂

Húsaleigusamningar MA íbúa farnir í póst

Húsaleigusamningar MA íbúa fóru í póst í dag og ættu því að berast íbúum í næstu viku. Reynt var að verða við óskum íbúa um herbergi eins og hægt var.

Móttaka nýnema í VMA miðvikudaginn 19. ágúst - skipulag á móttöku

Eins og fram hefur komið þá hefur skólabyrjun í VMA verið frestað og því breytist tímasetning á móttöku VMA íbúa á heimavist. Miðvikudaginn 19. ágúst tökum við á móti nýnemum (fæddir 2004 og 2005). Dagsetning á skólabyrjun hjá eldri íbúum og þeim eldri íbúum sem ekki hafa verið áður á heimavist liggur ekki fyrir en verður birt á Heimasíðu og facebook síðu eftir helgi. Skipulagið miðast við þær reglur og samkomutakmarkanir sem við búum við vegna COVID-19 og hafa íbúar og forráðamenn fengið tölvupóst þar um.

Nýr listi - hagnýtar upplýsingar fyrir íbúa

Þegar íbúar koma á heimavistina þurfa þeir að hafa með sér: Handspritt til að hafa á herbergi Handsápu Sæng og kodda Sængurver, koddaver og lök Handklæði Rúmteppi ef vill Körfu eða annað hentugt undir óhreinan þvott Herðatré Leirtau, hnífapör og glös/könnur eru ekki til staðar á herbergjum Hlífðarlök fyrir rúmdýnur eru til staðar og hægt að fá til skiptanna í anddyri. Íbúar þurfa síðan sjálfir að hafa sitt eigið lak Íbúar fá sérmerkt þvottanet fyrir tuskur og svampa. Íbúar fá þvottaefni til að þrífa herbergi og baðherbergi þar sem það á við. Ryksugur og moppur eru til staðar á hverri hæð fyrir sig og þurfa íbúar að sjá um að spritta fyrir og eftir notkun. Sótthreinsispritt verður á hverri hæð í skolunum Íbúar geta endurraðað húsgögnum á herbergjum en verða að skilja við þau eins og þau komu að þeim í upphafi. Mikilvægt er að passa upp á að skemma ekki gólfefni og húsgögn við flutningana Íbúar mega aðeins hengja upp myndir eða annað á veggi með "kennaratyggjói" til að koma í veg fyrir að málningin skemmist Íbúar á nýju vist hafa aðgang á herbergjum að örbylgjuofni og litlum ísskáp. Þeir íbúar sem eru á gömlu vist hafa ekki aðgang að ísskáp á herbergjum, en sumir koma með lítin kæliskáp með sér Íbúar geta fengið að geyma töskur á svokölluðu töskulofti. Þá er aðstaða í kjallara til að geyma skauta, skíði, skíðaklossa o.s.frv.

Móttaka íbúa VMA á heimavist

Móttaka íbúa VMA verður þriðjudaginn 18. og miðvikudaginn 19. ágúst n.k. Vegna þeirra sérstæku aðstæðna sem við stöndum frammi fyrir vegna COVID verður móttöku íbúa skipt upp. Þriðjudaginn 18. ágúst tökum við á móti nýnemum (fæddir 2004 og 2005) og eldri íbúum sem ekki hafa verið áður á heimavistinni. Nánara skipulag sent út fljótlega. Miðvikudaginn 19. ágúst tökum við á móti þeim íbúum sem hafa verið áður á heimavistinni. Nánara skipulag sent út fljótlega. Biðjum íbúa og forráðamenn að fylgjast með!

Móttaka íbúa VMA seinkar!

Móttöku íbúa VMA verður seinkað frá áður auglýstum tíma. Það verður því ekki opið fyrir innritun sunnudaginn 16. ágúst og mánudaginn 17. ágúst n.k. eins og gert var ráð fyrir. Við nýtum tímann til að undirbúa stóra heimilið þannig að reglum og samkomutakmörkunum verði sem best mætt. Ný tímasetning vegna móttöku sem og aðrar upplýsingar ættu að berast á morgun fimmtudag.